raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég vil bara nota tækifærið og þakka fyrir umræðuna. Þótt ótrúlegt megi virðast miðað við síðustu ræður þá heyrist mér vera góð sátt um frumvarpið, en þeir sem hafa komið inn í umræðuna á lokametrunum gætu kannski ekki alveg dregið þá ályktun. Ég vil þó aðeins segja, vegna þess að það er mikilvægt að halda því til haga, að það er ekki gott að vera að rugla öllum hlutum saman. Það er vissulega komin samkeppni á markaðinn og miðað við allar þær upplýsingar sem við höfum hefur það leitt af sér góða hluti og sú samkeppni haldið aftur af hækkunum. Hv. þingmaður og allir aðrir geta bent réttilega á að þetta sé nú kannski ekkert hinn fullkomni markaður. Það er alveg rétt og kannski ættum við þá bara að hætta með hann. Gallinn við þá röksemdafærslu, ef við skoðum aðra markaði á Íslandi — ég er að vísu ekki alveg sammála hv. þingmanni að við séum hér einhvers staðar úti í ballarhafi, við erum í Norður-Atlantshafi og góðum stað og ég vil hvergi annars staðar vera. En ég vil reyna að ýta undir samkeppni frekar en að hamla henni og hún fái að njóta sín þó að ég sé fullkomlega meðvitaður um það að hún er öðruvísi og oft og tíðum minni heldur en í stærri samfélögum. Það er þó ekki alveg einhlítt. En við getum alveg farið í gegnum hina ýmsu markaði og sagt: Hér á Íslandi erum við svo fá, það eru svo fáir sem eru að selja okkur vörur og þjónustu, það er ekki mikil samkeppni. En það er betra að hafa hana en ekki og ég held að það sé niðurstaða okkar Íslendinga.
Umræðan um sæstreng hefur alltaf verið, komið og farið, og hún hefur ávallt verið um það að hann yrði lagður til Bretlands. Ég hef aldrei heyrt hugmyndir um að leggja sæstreng eitthvert annað. Þegar Bretland var í Evrópusambandinu höfðu menn áhyggjur af því að við gætum þar af leiðandi ekki mismunað þeim sem væri selt og þar sem orkuverðið væri hærra annars staðar þá myndi það leiða til hækkunar hér. En Bretland er ekki lengur í Evrópusambandinu. Það liggur alveg fyrir. En það eru samt sem áður hugmyndir um það frá aðilum — ekki lengur sú hugmynd, sem ég skildi aldrei, að við værum að nýta einhverja umframorku, sem ég veit ekki hvar er og hvar menn ætluðu að fá hana — núna eru hugmyndir uppi um að nýta vindorku hjá erlendum aðilum og ég vissi ekki að það væri neitt leyndarmál þó að ég þekki ekki þessa umfjöllun sem hv. þingmaður vísaði til. Þó svo að ég sé mjög tilbúinn til að setja mig inn í alla hluti þá ætla ég ekki að elta allar skýrslur sem eru skrifaðar úti í bæ, það er bara ekki þannig. Það er algerlega útilokað. Ég á alveg nóg með þær skýrslur sem ég læt gera sjálfur og er nauðsynlegt að ég lesi út af mínum störfum. Mér líður hins vegar vel með það og það er alveg skýrt að við þurfum að klára þetta verkefni á Alþingi, ef einhverjum skyldi detta í hug að ætla að klára það. Það liggur alveg fyrir að það eru aðilar sem hafa áhuga á því að fara að nýta vindorkuna í hafi og leggja sæstreng frá landinu. Það liggur alveg fyrir.
En aðalatriði málsins er þetta, að mínu áliti, ég kom hér til að kynna frumvarp og tala fyrir því og mér heyrist vera góð sátt um það enda tel ég það vera gott. Ég vona að það gangi vel hjá þingmanninum að klára það verkefni.