153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

raforkulög og Orkustofnun.

983. mál
[21:58]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á raforkulögum og lögum um Orkustofnun. Megintilgangur frumvarpsins er að treysta og efla raforkueftirlit samkvæmt raforkulögum í samræmi við kröfur tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/72/EB um sameiginlegar reglur um innri markaðinn fyrir raforku. Frumvarpið er samið í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu að höfðu samráði við Orkustofnun. Þá var haft samráð við kjara- og mannauðssýslu fjármálaráðuneytisins vegna breytinga á lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna sem leiða af frumvarpinu. Áform um lagasetninguna og drög að frumvarpinu voru kynnt til umsagna í samráðsgátt stjórnvalda. Í samráðskafla greinargerðarinnar er greint frá umsögnum og viðbrögðum við þeim.

Með lögum nr. 112/2019 voru gerðar breytingar á raforkulögum og lögum um Orkustofnun í þeim tilgangi m.a. að innleiða ákvæði tilskipunar 2009/72/EB hvað varðar kröfur tilskipunarinnar um sjálfstætt raforkueftirlit. Eftir breytingarnar kemur fram í lögunum að Orkustofnun sé sjálfstæð í störfum sínum þegar stofnunin sinnir raforkueftirliti samkvæmt raforkulögum og ráðherrar geta ekki gefið fyrirmæli um framkvæmd eftirlitsins. Til að tryggja sjálfstæði ákvarðana Orkustofnunar skuli stofnunin setja sér starfsreglur. Í ljósi sjónarmiða sem fram hafa komið í samskiptum ráðuneytisins og Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) er talin þörf á að hnykkja frekar á tilteknum ákvæðum löggjafarinnar sem tengjast sjálfstæði raforkueftirlitsins.

Tilskipunin gerir kröfu um að ríkið komi á fót eftirlitsaðila sem er ekki einungis sjálfstæður gagnvart raforkufyrirtækjum heldur einnig gagnvart stjórnvöldum. Í því felst m.a. að ákvarðanir eftirlitsaðila verða án utanaðkomandi áhrifa, svo sem frá ráðherra, ráðuneyti eða öðrum. Aðildarríkin skulu ábyrgjast sjálfstæði eftirlitsvaldsins og tryggja að það beiti valdi sínu af óhlutdrægni og á gagnsæjan hátt. Sjá skal til þess að við framkvæmd eftirlitsins sem eftirlitsvaldinu er falið að eftirlitsvaldið sé lagalega aðgreint og óháð öllum öðrum opinberum aðilum eða einkaaðilum. Tryggja ber að starfsfólk eftirlitsins og þeir sem fara með stjórn þess starfi óháð hvers konar markaðshagsmunum eða öðrum opinberum aðilum eða einkaaðilum við framkvæmd eftirlitsverkefna. Tryggja skal að eftirlitsvaldið geti tekið sjálfstæðar ákvarðanir óháð öllum aðilum á sviði stjórnmála og árlegar fjárveitingar til þess séu aðskildar frá öðrum, hafi sjálfstæði við framkvæmd fjárúthlutana og fullnægjandi mannafla og fjármagn til að sinna skyldustörfum sínum. Þá er í tilskipuninni mælt fyrir um að stjórnarmeðlimir eða yfirstjórn eftirlitsvaldsins, sé stjórn ekki til staðar, séu skipaðir í fimm til sjö ár í senn og heimilt sé að endurskipa einu sinni.

Í frumvarpinu er lagt til að tilgreint verði sérstaklega í lögum um Orkustofnun að innan stofnunarinnar skuli starfa sérstök eining sem nefnist Raforkueftirlitið. Hlutverk þess skal vera að sinna raforkueftirliti samkvæmt raforkulögum. Þó er gert ráð fyrir að orkumálastjóri geti einnig falið raforkueftirlitinu önnur verkefni. Raforkueftirlitið skal vera sjálfstætt í störfum sínum þegar það sinnir raforkueftirliti samkvæmt raforkulögum. Í sjálfstæði raforkueftirlitsins felst m.a. að ákvarðanir þess við raforkueftirlit séu án áhrifa frá orkumálastjóra, ráðherra orkumála eða öðrum aðilum.

Þá eru lagðar til nokkrar breytingar á raforkulögum í þeim tilgangi að aðgreina með skýrari hætti starfsemi raforkueftirlitsins frá annarri starfsemi Orkustofnunar. Eftirlits- og stjórnsýsluverkefni sem tengjast flutningi, dreifingu og viðskiptum með raforku er með frumvarpinu skýrlega falið raforkueftirlitinu. Lagt er til að raforkueftirlitinu verði stýrt af embættismanni skipuðum af orkumálastjóri til fimm ára í senn. Embættismaðurinn mun bera faglega og stjórnunarlega ábyrgð á rekstri raforkueftirlitsins sem og á öðrum verkefnum sem orkumálastjóri felur honum. Gert er ráð fyrir að sama einstakling megi aðeins skipað tvisvar í embætti skrifstofustjóra raforkueftirlitsins. Með þeim hætti er kröfu tilskipunarinnar um tímabundna skipan yfirstjórnar eftirlitsvaldsins fullnægt og að raforkueftirlitið haldi sjálfstæði sínu við raforkueftirlit.

Virðulegi forseti. Ég hef rakið meginefni frumvarpsins og legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. atvinnuveganefndar.