raforkulög og Orkustofnun.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra framsöguna, stutta og snarpa framsögu. Ég held ég nái nú í meginatriðum innihaldi þessa frumvarps en mig langar að spyrja hæstv. ráðherra í samhengi þess uppleggs sem hér er hvort það liggi fyrir og/eða hann sjái fyrir sér hver fjöldi þeirra sem ynni að þessu eftirliti yrði, fjöldi starfsfólksins. Eins og ég skil frumvarpið yrði það alltaf ráðið af orkumálastjóra þó svo að það gildi sérstök ákvæði um yfirmanninn, raforkueftirlitsyfirmanninn. Í því samhengi langar mig líka að spyrja hvort ráðherra viti til þess að það sé einhver hliðstæða í íslenskum lögum varðandi þetta fyrirkomulag. Það næsta sem kemst því hefði ég haldið að gæti hugsanlega verið netöryggissveit íslenskra stjórnvalda sem er í rauninni hluti af Fjarskiptastofu og forstjóri Fjarskiptastofu ber í rauninni ábyrgð á netöryggissveitinni en hún er skipulagslega aðgreind frá eftirlitshlutverki Fjarskiptastofu og með aðgreint bókhald. Ég bara velti fyrir mér hvort það séu einhver önnur dæmi innan stjórnsýslunnar um svona fyrirkomulag eins og lagt er upp með í þessu frumvarpi auk þess hver sé ráðgerður fjöldi þeirra sem ynni að þessu eftirliti auk forstöðumanns.