153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

raforkulög og Orkustofnun.

983. mál
[22:04]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það er ekki gert ráð fyrir að fjölga starfsmönnum. Þetta er meira í rauninni faglegur aðskilnaður. Ég held að það sé mjög skynsamlegt að hv. nefnd fari vel yfir það hvernig því sé best fyrir komið. Mig minnir að þetta séu fimm einstaklingar og ekki gert ráð fyrir að fjölga þeim. Hvort heldur sem er þá held ég að það sé skynsamlegt að raforkueftirlitshlutinn sé sjálfstæður, þ.e. sá hluti Orkustofnunar sem á að vera sjálfstæður í störfum sínum. Það er bara gott fyrir hv. nefnd að fara yfir það, það eru nokkrar hugmyndir um hvernig er best að gera það og ég treysti nefndinni til þess að fara vel yfir það.

Varðandi hliðstæður, hv. þingmaður vísaði í eitt dæmi, þá voru hér eitt sinn umræður um það að taka raforkueftirlitið og sameina það öðrum eftirlitsstofnunum. Ef ég man rétt voru það hugmyndir um að setja í eina stofnun raforkueftirlitið, Póst- og fjarskiptastofnun og Samkeppniseftirlitið. Það var ein hugmynd sem ég heyrði. En ég held að það sé mikilvægt að þessi hlutur sé alveg vel skilgreindur og það fari ekkert á milli mála hvað er raforkueftirlit hjá Orkustofnun og hvað það er annað sem Orkustofnun þarf að sinna. Og alveg burt séð frá því reglugerðarumhverfi sem við erum í þá er vel þess virði að fara yfir það því að það skiptir mjög miklu máli t.d. að það sé eftirlit með því að það sé ekki verið að blanda saman samkeppnisrekstri og sérleyfisrekstri, svo dæmi sé tekið. Það hafa verið gagnrýnisraddir um það. Það er mikilvægt að við höfum fyrirkomulag þar sem er tryggt að það geti ekki gengið, svo eitthvert dæmi sé tekið af mörgum sem má taka.