raforkulög og Orkustofnun.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og tek undir það sem hann segir, að það er þess virði, í ljósi þess að þetta fyrirkomulag á sér kannski ekki endilega hliðstæðu og aðrar hugmyndir hafa verið uppi eins og ráðherrann lýsir ágætlega hér, að nefndin fari yfir þetta gaumgæfilega og átti sig á því hvað myndi teljast fullnægjandi í þessu samhengi. Hæstv. ráðherra nefnir engu að síður fimm einstaklinga. Í kaflanum um mat á áhrifum, með leyfi forseta, segir: „Mögulegur kostnaður vegna áformanna rúmast innan fjárheimilda og hafa áformin því ekki áhrif á fjárhag ríkissjóðs.“ Ber þá að skilja það sem svo að þarna sé í rauninni, að undanskildum forstöðumanni eða sviðsstjóra sem sérstaklega er kveðið á um hvernig eigi að skipa, verið að horfa til stöðugilda sem þegar eru hjá Orkustofnun sem myndu þá flytjast til sérstaks eftirlits?