raforkulög og Orkustofnun.
Virðulegi forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni fyrir þetta. Eitt sem kom í hugann, af því að hv. þingmaður spurði í fyrra andsvari sínu um sambærilega hluti, þá er það sem hét held ég skattrannsóknarstjóri núna hjá Skattinum og er með þetta sjálfstæði. Hérna er bara um það að ræða að verið er að skerpa á sjálfstæðinu en það er ekki verið að breyta öðrum hlutum. Komi fram ábendingar um það t.d. hvort rétt sé þá að orkumálastjóri skipi viðkomandi eða hvort ráðherra ætti að gera það þá held ég að það sé eitthvað sem menn eigi að skoða sérstaklega því að þetta á bara að tryggja það að raforkueftirlit, sem er mjög mikilvægt eftirlit, alltaf en ekki síst í því umhverfi sem við erum núna, sé sjálfstætt og óháð í sínum störfum. Það kallar hins vegar ekkert á að það þurfi að vera óhagræði þegar kemur að embættinu eða Orkustofnun. Við erum með þetta núna í miklu sameiningarferli og mikilvægt að það haldi áfram. En við getum samt sem áður skerpt á sjálfstæðinu og til þess er þetta frumvarp fram komið.