153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

raforkulög og Orkustofnun.

983. mál
[22:09]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég er á svipuðum slóðum og hv. þm. Orri Páll Jóhannsson, varðandi umfang eftirlitsins. Ef ég skil rétt þá snýst þetta fyrst og fremst um að hafa eftirlit með einokunarþáttunum, þ.e. dreifingu og flutningi. Dreifingin er eins og flutningurinn meira og minna í opinberri eigu, eins og framleiðslan. Telur hæstv. ráðherra að þetta einfaldi að einhverju leyti eftirlitið og minnki að einhverju leyti kostnaðinn? Það má heyra það á hæstv. ráðherra að hann telji þetta ekki verða mjög umfangsmikið. Í öðru lagi þætti mér vænt um ef hann gæti greint frá því, af því að það stendur til að breyta að einhverju leyti skipan stofnunarinnar og færa hana inn í nýja loftslagsstofnun, þ.e. Orkustofnun inn í loftslagsstofnun, hvort þetta gefi einhver tækifæri í þeim efnum. Þeirri vinnu var hleypt af stokkunum fyrir ekki svo mörgum mánuðum og það væri fróðlegt að heyra hvort hann hefði einhverja sýn sem hann gæti greint okkur frá hvað varðar þennan þátt og eftirlitsþáttinn þar með.