raforkulög og Orkustofnun.
Virðulegi forseti. Svona til að reyna að setja þetta í eitthvert samhengi þá hefur raforkueftirlitið náttúrlega ávallt verið til og það tekur á ýmsum þáttum. En eitt af því sem við vorum að ræða hér, ég og hv. þm. Orri Páll Jóhannsson, var það sem við getum sagt að sé einokunarstarfsemi í þessum stóru orkufyrirtækjum og að menn séu ekki að nota tekjurnar sem eru þar til að niðurgreiða samkeppnisrekstur. Einhvern tíma var ég nú í þeirri stöðu, var í borgarstjórn Reykjavíkur í minni hluta og í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, og gagnrýndi ýmislegt sem var þess eðlis. En hv. þingmaður talaði um sýn og þá finnst mér skipta máli að við séum með eftirlit hvað þetta varðar. Ég taldi að menn hefðu farið út af sporinu, svo ekki sé dýpra í árinni tekið, sem olli neytendum miklum kostnaði og skattgreiðendum í Reykjavík. En varðandi sameiningar þá erum við að fara í það að taka tíu stofnanir og búa til þrjár úr því, það er það sem við erum að gera, til þess að efla þær og styrkja. Og ég veit að hv. þingmaður er sammála þeim markmiðum. Þetta eru náttúrlega mismunandi stofnanir en þetta er ekki síst gert til þess að efla starfsstöðvarnar á landsbyggðinni, þar sem mjög mikið af eftirlitinu og starfseminni heyrir undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðueytið. En í þessu tilfelli er raforkueftirlitið til staðar, það er inni í Orkustofnun, og núna er þetta frumvarp lagt fram til að skerpa frekar á sjálfstæði þess þannig að þeir sem sinna því eftirliti séu ekki háðir öðrum, hvorki stofnuninni né öðrum.