raforkulög og Orkustofnun.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Það er greinilegt að hann telur að það sé ekki síður mikilvægt að hafa eftirlit með opinberum aðilum, sérstaklega þegar kemur að starfsemi í borginni. Eftir að hafa hugleitt það stutta stund, tilflutning fjármuna héðan og þaðan hjá veitufyrirtækjum og öðrum stofnunum, þá get ég alveg tekið undir það, þetta er mikilvæg starfsemi. Þess vegna vil ég bara hvetja hæstv. ráðherra til að huga að því í þessari vinnu sem er fram undan að það verði tryggilega gengið frá því þannig að neytendur njóti. Auðvitað er það nú bara þannig að ef eftirlitið er sæmilega virkt, því er komið þannig fyrir, þá er það mikilvægt fyrir neytendur hvar sem er í samfélaginu. Og að því leyti til get ég tekið undir með hæstv. ráðherra hvað þennan þátt varðar. Ég held að það geti einmitt skapað ýmis tækifæri ef menn fara og skoða samlegð þessara ólíku stofnana. Loftslagsstofnun mun hafa það skringilega hlutverk jafnvel að hafa eftirlit með jarðvegi og jarðvegsmengun og mörgum þáttum á sviði orkumála og eftirliti með orkumálum þannig að það er ærið verk fyrir höndum hjá hæstv. ráðherra.