raforkulög og Orkustofnun.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hann þekkir auðvitað af eigin raun mikilvægi þess að eftirlit sé skilvirkt og gott og það á að vera til þess að vernda fyrst og fremst neytendur og notendur, ég veit ekki hvort ég á að bæta við einhverjum fleiri sem hv. þingmaður vísaði til. Ég held að við séum sammála þarna og það er vel og það er gott að heyra góð viðbrögð við þessu frumvarpi því að við erum öll sammála um markmiðin og ég held að þetta sé góð leið til að ná þeim markmiðum.