Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég ætla að gera hér að umtalsefni þær ömurlegu aðstæður sem bændur við Miðfjörð standa nú frammi fyrir. Skorið hefur verið niður á tveimur bæjum vegna riðu og það er með engu móti hægt að setja sig í spor þeirra bænda sem þar eru og sitja núna heima fyrir við gjörbreyttar aðstæður og tóm fjárhús. Sá annatími sem senn fer í hönd, þ.e. sauðburður, verður ekki þetta árið og væntanlega ekki næstu tvö eða þrjú vor í viðbót. Það verkefni sem bændur á Bergsstöðum og Urriðaá standa frammi fyrir núna er þá samningsgerð vegna afurðatjónsbóta. Þegar maður kannar hvernig þar er í pottinn búið þá er alveg ljóst að endurskoðunar er þörf og veit ég að hæstv. matvælaráðherra er með það til skoðunar. Útreikningur á afurðatjónsbótum byggist á reglugerð nr. 651/2001 en sú reglugerð er komin vel til ára sinna og í engum takti við þann veruleika sem er nú um stundir í sauðfjárbúskap hvað varðar gjörbreyttar afurðir eftir sauðfé sem afurðatjónsbæturnar eru reiknaðar út frá. Því kem ég hér upp með þá hvatningu til matvælaráðherra að endurskoða þennan útreikning og reglugerðina, því þótt við getum alltaf verið bjartsýn þá er þetta væntanlega ekki í síðasta skiptið sem við þurfum að skera niður vegna riðu, því að við erum ekki enn þá komin á þann stað í dag að geta farið í aðrar aðgerðir.