Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í sjónvarpsfréttum Ríkisútvarpsins í gærkvöldi var fjallað um ópíóíðafaraldurinn og faraldur lyfjatengdra andláta ungmenna sem færst hefur í aukana hér á landi sem og annars staðar í heiminum á síðustu árum. Staðan er sú að ópíóíðafíkn verður útbreiddari með hverju árinu sem líður samkvæmt tölum landlæknisembættisins. Embættið hefur þó ekki gefið út staðfestar tölur um fjölda þeirra sem hafa látist vegna lyfjafíknar á síðustu mánuðum. Gögn frá sjúkrahúsinu Vogi sýna þó að 35 einstaklingar undir 50 ára, sem hafa nýtt þau úrræði sem sjúkrahúsið býður upp á, hafa látist það sem af er ári og virðist sem dauðsföllum sé enn að fjölga ofan á þá fjölgun sem við höfum séð undanfarin ár. Vegna fjölda andláta og umræðunnar í samfélaginu hafa fleiri leitað í skaðaminnkandi úrræði Frú Ragnheiðar til að afla sér þekkingar um skammtastærðir, áhrif þeirra efna sem þau eru að nota og fá upplýsingar um notkun Naloxone, neyðarúða sem getur komið í veg fyrir ofskömmtun. Það er engin nýlunda að nota ópíóíða sem fíkniefni en sérfræðingar hér á landi hafa bent á að samhliða aukinni neyslu þessara lyfja hafi eðli hennar breyst. Ópíóíðar séu í meira mæli en áður fyrsta fíkniefni sem einstaklingur notar en áður fyrr hafi neysla ópíóíða verið einkennandi fyrir fólk sem hafi verið í langvarandi alvarlegri neyslu og notað slík efni í æð. Þetta er grafalvarlegur vandi sem við stöndum frammi fyrir sem samfélag. Málaflokkurinn er stór og í senn velferðar-, félags- og heilbrigðismál. Það er því ljóst að til þess að takast á við hann þarf fjöldi aðila að koma saman. Það er engin ein lausn. Við þurfum forvarnir gegn sýkingarhættu og leiðbeiningar eins og veittar eru í skaðaminnkandi úrræðum Rauða krossins. Við þurfum gagnreyndar aðferðir til að hjálpa fólki sem vill losna undan fíkninni. Við þurfum að tryggja eftirfylgni sjúklinga því að áhrifin á notendur eru oft langvarandi, flókin og snerta bæði andlega og líkamlega heilsu. Þá eru ótalin þau verulegu félagslegu áhrif sem þau kunna að hafa í för með sér. Ég tek undir með hæstv. heilbrigðisráðherra: Við verðum að samþætta þjónustuna við fólk með fíknisjúkdóma og taka utan um alvarleika málsins.