Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

Störf þingsins.

[15:09]
Horfa

Ágúst Bjarni Garðarsson (F):

Virðulegur forseti. Ég ætla aðeins að ræða uppbyggingu húsnæðis, ætla að ræða svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins og minn heimabæ, Hafnarfjörð. Ég vil tengja þetta allt saman. Þau metnaðarfullu markmið sem stjórnvöld hafa sett sér um uppbyggingu 35.000 íbúða á næstu tíu árum eru mjög mikilvæg. Það er innlegg í það mikla verkefni að ná jafnvægi á húsnæðismarkaði, innlegg í það að byggja húsnæði fyrir þá hópa sem eru tekjulágir, námsmenn, óhagnaðardrifin leigufélög o.s.frv. Það hefur verið skortur á húsnæði sem þessu og við verðum að vinna okkur áfram. En það er full þörf á átaki sem þessu og mikilvægt að öll sveitarfélög komi að borðinu og taki þátt í þessu samfélagslega verkefni.

Nú er staðan svo að það eru því miður ekki öll sveitarfélög sem eiga tiltækt land til uppbyggingar. Þar getum við nefnt Hafnarfjörð, minn heimabæ, sem dæmi. Þar liggja tvö byggingarlönd sem eru svo gott sem tilbúin undir byggingarlínum. Það er fyrirstaðan. Þar getum við nefnt lönd eins og Ásland 4 og Vatnshlíð sem eru nú þegar innan svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins. Því miður eru önnur sveitarfélög í mínu kjördæmi ekki jafn heppin, þ.e. að eiga land til að brjóta sem er innan svæðisskipulags. Við þekkjum það nefnilega öll vel að svokölluð þéttingarverkefni eru kostnaðarsamari en þau svæði sem kallast nýbyggingarsvæði og það er mikilvægt að gera hvort tveggja. Ef okkur öllum er alvara í því verkefni, og við höfum ekki borið gæfu til þess enn sem komið er að færa línurnar, að byggja fyrir alla hópa samfélagsins á næstu tíu árum þá hlýtur það að koma til skoðunar að gefa þeim sveitarfélögum sem eru í svipaðri stöðu og Hafnarfjörður einhvers konar undanþágu frá svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins svo hægt sé að tryggja nauðsynlega uppbyggingu húsnæðis innan þessa tímaramma og ég hvet ráðherra til að taka þetta strax til skoðunar.