Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

Störf þingsins.

[15:16]
Horfa

Halldór Auðar Svansson (P):

Virðulegur forseti. Ein af efnahagsaðgerðunum sem stjórnvöld fóru í þegar Covid-faraldurinn reið yfir var átak sem kallaðist Allir vinna og fólst í því að endurgreiðsla á virðisaukaskatti vegna vinnu við íbúðarhúsnæði var hækkuð úr 60% í 100%. Þetta átak féll niður í fyrra og því var alltaf ætlað að vera tímabundið. Gott og vel. Nú ber hins vegar svo við að í nýjustu fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er lagt til að lækka þessa endurgreiðslu niður í 35%, átak sem mætti kannski kalla Allir tapa. Ætlunin með þessu er beinlínis að hægja á þeim vélum sem reynt var að örva í Covid og skipta niður í gír. Þetta eru miklar sveiflur á þessu hlutfalli á skömmum tíma og möguleikinn á frekari sveiflum samhliða þróun stöðunnar í hagkerfinu er viðraður í fjármálaáætluninni. Þetta hlutfall er þannig allt í einu orðið eitt helsta hagstjórnartæki ríkisstjórnarinnar. Ég sakna hins vegar rakanna fyrir því að þetta sé nauðsynlegt, ekki síst í ljósi þess að þessi boðaða skattahækkun, því að þetta er það í reynd, hækkar kostnað almennings vegna þeirrar lífsnauðsynjar sem húsnæði er og kemur ofan á þær miklu kostnaðarhækkanir sem hafa verið á fjármögnun húsnæðis í gegnum húsnæðislánin og sér jafnvel ekki fyrir endann á því. Það var nú allt og sumt. Ég sakna rakanna fyrir þessari aðgerð.