Störf þingsins.
Forseti. Miðað við tölfræði Umferðarstofu voru á síðasta ári afskráðir 8.585 fólksbílar. Nýskráðir fólksbílar voru hins vegar 20.710. Dreift yfir árið eru þetta 33 bílar sem bætast við á hverjum degi. Til þess að setja tölurnar í samhengi myndu viðbótarbílar síðasta árs duga í bílaröð frá Granda upp á Akranes. Miðað við framkvæmdaáætlun sáttmála um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu hefðu 8 milljarðar átt að berast í sáttmálann á síðasta ári frá ríki og sveitarfélögum, þar af 7 milljarðar frá ríkinu. Það sama gildir um árið í ár.
Nú spyr ég, forseti: Hvar er þetta fjármagn? Miðað við núverandi stöðu er langt í að borgarlínan fari að keyra. Við þurfum að bregðast við strax því samgöngur á höfuðborgarsvæðinu þurfa hressilega innspýtingu. Þær tilraunir til að ná almennilegri aukningu í tíðni, sem er helsta ástæðan sem fólk gefur fyrir því að nýta ekki strætó, hafa gengið það stutt að þær hafa ekki dugað til. Við höfum einfaldlega ekki kost á öðru þar sem við getum í fæstum tilfellum bætt við fleiri akreinum á stofnvegi, fyrir utan að flestar greiningar sýna að það myndi ekki duga til. Eigi árangur að nást þarf að fækka bílum á götunum. Þótt borgarlína muni án nokkurs vafa leysa vandamálin betur en við getum með núverandi kerfi þá þurfum við að leysa vandamálin núna. Það er of seint að leysa þau 2025. Því skora ég á ríkisstjórn og Alþingi að standa við sáttmálann og setja það fjármagn sem sáttmálanum tilheyrir strax í almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu.