Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

Störf þingsins.

[15:20]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson gerði athugasemd við ræðu sem ég hélt fyrr í vikunni um störf þingsins þar sem ég m.a. fjalla um þann stórkostlega árangur sem lögreglustjórinn William Bratton og aðrir náðu í því að takast á við skipulagða glæpastarfsemi og raunar alla glæpastarfsemi í New York á sínum tíma. Svo vel gekk það að hann var svo ráðinn til Los Angeles til að taka þá borg í gegn. Hv. þingmaður talaði hins vegar um eitthvað allt annað en ég ræddi og þess vegna er óþarfi að verja frekari tíma í það, enda hafði ég hugsað mér að ræða hér aðeins nýjasta útspil hæstv. dómsmálaráðherra sem hefur boðað reglugerðarsetningu til að takast á við mikinn straum hælisleitenda til Íslands. Nú leggur hann til fyrst um sinn að boðið verði upp á greiðslur upp á allt að 3.000 evrur til þeirra sem hafa komið hingað og sótt um hæli en ekki átt rétt á hæli; farið í gegnum allt ferlið og ekki fengið hæli. Þetta er eitthvað sem hefur verið gert sums staðar annars staðar, það er rétt hjá hæstv. ráðherra, og það getur reynst ódýrara en að fylgja fólki út nauðugu með ærnum tilkostnaði. En enn á ný sjáum við á viðbrögðum þessarar ríkisstjórnar að það er ekkert hugað að forvörnum ef svo má segja. Það eru alltaf bara viðbrögð eftir orðinn hlut. Og hvað telja menn að þetta muni hafa í för með sér varðandi strauminn hingað? Ef við lítum á að það sé áhyggjuefni að hingað komi fleiri einstaklingar til að sækja um hæli en til Danmerkur, væri þá ekki rétt að huga að straumnum? Hvaða áhrif mun það hafa á hann að ríkið lofi að ef þú ert búinn að fá stuðning til að fara í gegnum allt ferlið, jafnvel þó að þú virðist ekki eiga neinn rétt, ætli ríkið engu að síður að greiða út allt að 3.000 evrur?