Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

Störf þingsins.

[15:29]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hér hafa þingmenn tekið upp ákall aðstandenda fólks sem glímir við vímuefnavanda. Aðstandenda sem hafa misst ástvini í glímunni við þennan sjúkdóm. Ákall um að stjórnvöld og við hér í þinginu bregðumst við þessum faraldri sem geisar nú og ungt fólk fer verst út úr. Mig langar að taka þetta hér upp enn og aftur.

Okkur hér má vera það fullljóst að fólk með vímuefnavanda fær ekki sama stuðning og þjónustu í félags- og heilbrigðiskerfinu og annað langveikt fólk, hvað þá aðstandendur þess. Við aðstandendur þekkjum það að koma alls staðar að lokuðum dyrum og að sjúklingarnir séu flokkaðir sem annars flokks í kerfinu okkar. Hvaða skýring gæti verið önnur á sinnuleysinu gagnvart því að ungt fólk deyi unnvörpum úr vímuefnasjúkdómi? Og hver er ábyrgð okkar sem hér sitjum?

Hæstv. heilbrigðisráðherra hefur talað fyrir því að við tökum á vímuefnavandanum innan heilbrigðiskerfisins, sagt að við þurfum að skera upp herör gegn þróuninni í málaflokknum. Þar hafa undanfarið verið stigin fjölmörg jákvæð skref þegar kemur að skaðaminnkandi úrræðum en það er bara hluti af meðferðinni við þessum langvinna sjúkdómi. Bara hjá SÁÁ eru að staðaldri 300 manns í viðhaldsmeðferð og sjúklingum með ópíóíðafíkn hefur fjölgað mikið, mest hjá yngsta hópnum. Fjárveitingin frá okkur dugar hins vegar ekki fyrir nema tæplega þriðjungi þess fjölda og mun meiri eftirspurn er eftir meðferðarúrræðum en kerfið annar.

Við þurfum að bregðast við þeirri staðreynd að ungt fólk með lífshættulegan sjúkdóm komi að lokuðum dyrum í heilbrigðiskerfinu, deyi á banvænum biðlistum. Við þurfum að efla og auka skilvirkar forvarnir, fræðslu og meðferðarúrræði. Það er besta meðalið gegn þessum faraldri. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)