Húsnæðismál.
Herra forseti. Versnandi staða leigjenda og skortur á félagslegu húsnæði. Þetta er fyrsti punkturinn sem ég kem með í þessari þörfu umræðu sem mér finnst löngu tímabær og við verðum í rauninni sem löggjafi og fulltrúar fólksins í landinu að fara að taka almennilega umræðu um. Hver þekkir ekki söguna af henni Brynju, öryrkjanum sem fyrir jólin fékk skilaboð frá Ölmu, leigufélagi sínu, þar sem átti að hækka leiguna hennar um 75.000 kr. á milli mánaða, úr 250.000 kr. í hvorki meira né minna en 325.000 kr.? Frá árinu 2011 hefur húsaleiga hækkað um 127%, meira heldur en verðlag. Tæplega 40% örorkulífeyrisþega á leigumarkaði reiða sig á ættingja og hjálparstofnanir með framfærslu. Biðtími eftir félagslegu húsnæði á höfuðborgarsvæðinu er hvorki meira né minna en tvö ár a.m.k. Hlutfall félagslegs húsnæðis hér nær ekki 5% en í nágrannalöndunum er hlutfallið allt að 25%. Ég velti fyrir mér: Hvernig stendur á því að staða okkar er orðin eins og raun ber vitni? Hvernig stendur á því að við eigum hér land eins og Keldnalandið sem greinilega á að taka núna í einhverri skiptimynt sem uppgreiðslu í borgarlínu? Hvernig stendur á því þegar hefur verið vitað í mörg ár í hvað stefni að það er ekki búið að taka betur utan um húsnæðismálin en raun ber vitni? Við höfum sýnt það í verki eins og þegar við reistum bæði hverfið í Breiðholti og Grafarvogi og annað slíkt að allt sem þarf er vilji. Við þurfum bara að keyra í það.
Samdráttur í uppbyggingu á húsnæði og uppsöfnuð íbúðaþörf er smá punktur sem ég kem með líka því að samkvæmt Samtökum iðnaðarins þá stefnir í 65% samdrátt í uppbyggingu íbúða á næstu 12 mánuðum, 65% samdrátt. Hægt er að nefna aðrar tölur. Árið 2018 mat átakshópur þjóðhagsráðs uppsafnaða íbúðaþörf á bilinu 5.000–8.000 íbúðir. Það eru fimm ár síðan. Bara í fyrra fjölgaði okkur um 11.000 og við vitum það að þessi fimm ára gamla spá um uppsafnaða þörf á íbúðum, 5.000–8.000, er svo löngu úrelt og svo löngu út úr korti. Síðan þá hefur uppbygging íbúða rétt haldið í við fólksfjölda og okkur fjölgaði sem sagt um 11.000 á síðasta ári. Að loknum heimsfaraldri eru íbúðir að hverfa af markaðnum til þess að hægt sé að nýta þær frekar í Airbnb. Við þekkjum það. Ráðherra hefur gert rammasamkomulag við sveitarfélögin um uppbyggingu á 3.500 íbúðum á ári en þörfin er miklu meiri, enda tekur samkomulagið hvorki mið af þessari uppsöfnuðu íbúðaþörf né þeim 4.000 einstaklingum sem munu þurfa varanlegt húsnæði eftir að hafa fengið samþykkta umsókn um alþjóðlega vernd. Við erum að sjá það árlega, við erum að taka á móti fleiri einstaklingum sem óska alþjóðlegrar verndar en við höfum nokkurn tímann gert áður. Það er algerlega fordæmalaust.
Þriðji punkturinn sem ég kem með hér er fjárfestingarvæðing fasteignamarkaðarins eftir hrun. Frá árinu 2009 til ársins 2017 sölsaði Íbúðalánasjóður undir sig 4.300 íbúðir og seldi síðan til græðgisvæddra leigufélaga í stórum kippum, allt að 400 íbúðir í einum pakka. Þá seldi líka Kadeco um 2.000 íbúðir við Ásbrú á árunum 2002–2017. Flestar þessara íbúða hafa ratað í hendur leigufélaga og fjárfesta. Frá árinu 2005 hafa 66% nýbyggðra íbúða ratað í hendur fjárfesta og fyrirtækja. Í fyrra fóru 56% allra nýbygginga til fjárfesta og fyrirtækja. Þekkt er hvernig fjárfestar hafa flakkað á milli húsa á undanförnum árum. — Ég trúi ekki að tíminn sé að verða búinn, ég er rétt að byrja. En alla vega er það þannig að stjórnvöld hafa ekkert gert til að koma í veg fyrir þessi uppkaup og þessa þróun.
Að lokum verð ég að koma með þennan punkt, sem er innreið Vinnumálastofnunar á leigumarkaðinn. Það líður varla sá dagur að ekki berist fregnir frá leigutökum sem hefur verið gert að yfirgefa húsnæði sitt (Forseti hringir.) af því að Vinnumálastofnun er að yfirbjóða þá. Vinnumálastofnun af öllum. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að vera (Forseti hringir.) hérna með okkur í þessari umræðu sem er verulega tímabær. Ég var ekki einu sinni komin að vöxtum og verðbótum, en svona er það. (Forseti hringir.) Ég sem hélt ég talaði svo hratt en ég hlakka til að heyra í hæstv. ráðherra.