Húsnæðismál.
Virðulegi forseti. Allir þurfa þak yfir höfuðið og við eigum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja fólki húsnæði hér á landi. Því miður hefur staðan á húsnæðismarkaði verið erfið undanfarin ár sem skýrist fyrst og fremst af því að uppbygging húsnæðis hefur ekki fylgt íbúaþróun í landinu. Við höfum vitað mjög lengi að við þurfum að byggja að lágmarki 2.500 íbúðir á ári til að mæta þörf en síðustu tíu ár höfum við verið langt á eftir hvað það varðar.
Samtök iðnaðarins hafa nýverið gert könnun meðal félagsmanna sinna þar sem kom í ljós að áform byggingaraðila um fjölda verkefna hafa snarminnkað á einu ári. Fyrir ári síðan sögðust þessir aðilar vera að byrja á um 1.500 íbúðum en í dag eru þeir að byrja á um 500. Byggingarkostnaður hefur hækkað mikið sem skýrist einna helst af því að laun hafa hækkað verulega, verð á byggingarefnum hefur margfaldast, það er orkukrísa, verðbólga um alla álfuna og vextir hafa hækkað. Allt leiðir þetta til hækkunar húsnæðisverðs. Hér á landi er reynt að bregðast við með ýmsum hætti til að kæla markaðinn. Lánaskilyrði hafa verið þrengd, vextir hækkaðir og í fjármálaáætlun eru uppi hugmyndir um aðrar aðgerðir til að hægja á húsnæðismarkaðnum. Ég hef áhyggjur af því að við séum nú að búa til snjóhengju sem verður snúið að vinna sig út úr í náinni framtíð. Fasteignamarkaðurinn er svo til lokaður ungu fólki nú um stundir. Fjöldi fólks leitar færis á að komast inn á markaðinn og þegar fólk sé glufu verður staðan eins og að fjarlægja tappa úr baðkari. Eftirspurn verður mikil, of lítið hefur verið byggt, verð mun hækka og í þessari stöðu er erfitt að sjá að hægt verði að lækka vexti eða ná niður verðbólgu.