Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

Húsnæðismál.

[15:54]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Í sameiginlegu átaki ríkis og sveitarfélaga sem hleypt var af stokkunum á síðasta ári er verið að gera ráð fyrir að byggðar verði 20.000 íbúðir á næstu fimm árum. Samkvæmt rammasamningi er gert ráð fyrir að 30% nýrra íbúða verði hagkvæmar íbúðir á viðráðanlegu verði sem byggðar verði með stofnframlögum frá ríkinu eða með hlutdeildarlánum, samtals um 6.000 íbúðir á næstu fimm árum. Þá er áætlað að 5% íbúðanna verði félagslegt húsnæðisúrræði á vegum sveitarfélaganna, eða um 1.000 íbúðir á næstu fimm árum. Með þessum aðgerðum á að mæta þeim hópi sem hefur átt erfitt með að komast inn á húsnæðismarkaðinn, bæði fyrstu kaupendum og tekju- og eignalægri hópum.

Þetta eru háleit markmið, en er einhver von um að þessi markmið náist? Er markaðurinn tilbúinn í slíka uppbyggingu? Ég verð að segja að mér er það til efs. Þessa dagana erum við að sjá samdrátt á byggingarmarkaði. Byggingarverktakar eru áhyggjufullir og tala um mikinn samdrátt fram undan. Ráðherra hefur í þessum ræðustól talað um að stofnframlög gangi hreinlega ekki út. Fáir eru að nýta sér svokölluð hlutdeildarlán vegna þess að fáar íbúðir eru í boði sem standast þau skilyrði sem til þarf. Þá hefur fyrstu kaupendum fækkað verulega eða þeir hafa gjörsamlega horfið vegna aukinna skilyrða um eigið fé. Á sama tíma erum við að sjá mikla fólksfjölgun á ákveðnum vaxtarsvæðum þar sem aðstæður eru mjög krefjandi. Nægir að nefna Árborg og Reykjanesbæ sem dæmi. Það gefur augaleið að það reynir verulega á þau sveitarfélög sem eru í þeirri stöðu. Það dugar ekki að úthluta bara lóðum heldur verður uppbygging innviða að fylgja og þess vegna þarf að huga að stöðu þessara sveitarfélaga sérstaklega.