Húsnæðismál.
Herra forseti. Ég þakka hv. málshefjanda fyrir þessa mikilvægu umræðu en við ræðum hér enn eitt málið sem er stjórnlaust hjá þessari ríkisstjórn. Öll þessi stjórnlausu mál hafa áhrif hvert á annað, ekki hvað síst vegna þess að það virðist algjörlega skorta nokkra heildarsýn hjá ríkisstjórninni. Þegar þessi ríkisstjórn slær ítrekað Íslandsmet í útgjöldum og útgjaldavexti, sem hefur aldrei verið eins gegndarlaus og hjá þessari ríkisstjórn, þá leiðir það til verðbólgu og vaxtahækkana og það hefur áhrif á húsnæðisverð, svo sannarlega. Þegar málefni hælisleitenda eru stjórnlaus og það mæta fleiri einstaklingar til Íslands, litla Íslands, á þessu ári til að sækja um hæli en til Danmerkur og allt þarf fólkið húsnæði þá hefur það áhrif á húsnæðismarkaðinn, ekki hvað síst á leigumarkaðinn sem var nú nógu erfiður fyrir og jafnvel dæmi um, eins og nefnt hefur verið, að fólki sé vísað úr íbúðum sínum til að rýma til fyrir hælisleitendum og gert nánast ómögulegt að keppa um verð þegar ríkið, eða sveitarfélög, yfirbýður og leigir allt húsnæði sem það nær í. En um leið þá gleymist að hafa einhverja sýn um hvernig húsnæðismarkaðurinn eigi að þróast. Það er t.d. að því er virðist algerlega búið að gefast upp á hugmyndinni, sem reyndist vel hérna áratugum saman, um að gefa fólki tækifæri til að eignast eigið húsnæði. Í staðinn eru margir að borga miklu hærri leigu en þeir þyrftu að greiða í afborganir af húsnæði sem viðkomandi myndi þá smátt og smátt eignast hlut í.