Húsnæðismál.
Virðulegur forseti. Staða fólks á húsnæðismarkaði fer stöðugt versnandi. Segja má að sú vegferð hafi hafist eftir hrun þegar örvæntingarfullt fólk var hreinlega selt í hendur bankanna sem fengu að leika sér að því að vild. Leigumarkaðurinn stækkaði svo til í sama hlutfalli og heimilin voru hirt af 15.000 fjölskyldum því fyrir utan þær þúsundir sem flúðu land lenti stærsti hluti þessa fólks á honum. Upp risu leigufélög, mörg hver stofnuð og rekin af fólki sem hafði komið ár sinni vel fyrir borð fyrir hrun og fékk nú tækifæri til að koma fjármagni sínu í vinnu með því að kaupa íbúðarhúsnæði á gjafprís. Svo átti sér stað einhvers konar hringrás þar sem Sigga, Jón og Anna ásamt fjölskyldum fluttu úr sinni íbúð sem leigufélagið hirti og leigði þeim svo sitt á hvað; Sigga flutti í íbúð Jóns, sem fékk íbúð Önnu sem aftur flutti í íbúð Siggu. Ekkert þeirra bar sök á ástandinu og öll guldu þau það dýrum dómum. Bankarnir og leigufélögin hafa hins vegar allar götur síðan grætt á tá og fingri þannig að ekki sér enn fyrir endann á því. Síðan hefur staðan á húsnæðismarkaði stöðugt versnað og ekki hvað síst undir stjórn þessarar ríkisstjórnar. Nú er svo komið að þúsundir munu missa heimili sín á næstu árum, bæði þau sem eru að greiða af lánum sem hafa hækkað stjarnfræðilega á skömmum tíma og þau sem leigja, því að þessi ríkisstjórn krossar sig bara og biður guð um hjálp, vogi einhver sér að stinga upp á leigubremsu eða að einhverjum böndum sé komið á stjórnlausan leigumarkað. Nei, ríkisstjórnin stefnir að því leynt og ljóst að koma þúsundum fjölskyldna í viðbót í klær hrægammanna með því að firra sjálfa sig ábyrgð og benda fólki á náð og miskunn bankanna. Þessi ríkisstjórn er meira að segja svo óforskömmuð að benda á verðtryggð lán sem lausn fyrir þá sem ekki ráða við stökkbreyttar afborganir, vitandi fullvel að verðtryggð lán eru ekkert nema sæði fyrir enn ríkulegri uppskeru bankanna innan fárra ára. En ólíkt ástandinu eftir hrun mun dæmið ekki ganga upp þegar afleiðingar vaxtahækkana, verðtryggingar og hás leiguverðs koma fram og fólk stendur ekki lengur í skilum. Núna er Ísland uppselt og ekkert húsnæði til. Sigga, Jón og Anna munu ekki geta skipst á íbúðum, (Forseti hringir.) a.m.k. eitt þeirra mun falla af hringekjunni og hreinlega lenda á götunni. Það er hin skelfilega arfleifð þessarar ríkisstjórnar.