Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

Húsnæðismál.

[16:05]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér um stöðu á húsnæðismarkaði og síðan ég tók sæti á Alþingi árið 2016 höfum við gert það nokkrum sinnum. Húsnæðismarkaðurinn á Íslandi virðist bara í sögulegu samhengi búa við allt of miklar og skarpar sveiflur. Umræðan hefur ávallt verið eins og hér sé allt í kalda kolum. Þá er kannski rétt að rifja aðeins upp þann árangur sem við höfum náð því að samkvæmt opinberum tölum Hagstofunnar, úr lífskjararannsókninni, eru vanskil á húsnæðiskostnaði í sögulegu lágmarki núna, bæði hjá leigjendum og eigendum. Húsnæðisbyrði leigjenda hefur aldrei verið lægri, 14% árið 2022. Barnaheimilum á leigumarkaði hefur fækkað hlutfallslega, úr 26% árið 2017 í 13% árið 2022. En það eru blikur á lofti og það er efnahagsástandið og það er verðbólgan sem er auðvitað stóra málið og stóra verkefni okkar allra hér inni. Munum það þegar við ræðum um húsnæðismarkaðinn að töfralausnir fyrri tíma hafa ekki endilega virkað svo vel. Horfum á samfélagsbankann Íbúðalánasjóð sem að óbreyttu getur kostað ríkissjóð 200 milljarða. (LE: Af hverju?)Út af því að það var enginn samfélagsbanki til að bjarga hér húsnæðismálum — í staðinn fyrir að horfa kannski á stóra málið, hv. þingmaður, því að enginn hefur rakið það. Þetta snýst um framboð, að framboð sé í samræmi við eftirspurn. Þar þurfa bæði ríki og sveitarfélög að leggjast á eitt til að tryggja hér eðlilegt framboð til að koma í veg fyrir þær miklu sveiflur sem eru og hafa verið á þessum markaði.