Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

Húsnæðismál.

[16:18]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég velti því stundum fyrir mér þegar ég hlusta á stjórnarandstöðuna tala hérna hvort ég sé staddur í einhverjum öðrum heimi. (Gripið fram í.) Það er allt hér í húrrandi ómögulegheitum, það eru þúsundir sem missa heimili sín á næstu dögum og vikum (IngS: Nei.) og ég veit ekki hvað og hvað á ekki að fara að ganga hér yfir þegar við, alla hina dagana, sjáum að í alþjóðlegum samanburði velsældarvísa og hagsældarvísa erum við að keppa um gull, brons eða silfur. Og ef við lendum í fjórða, fimmta, sjötta, sjöunda eða áttunda sæti þá erum við hundóánægð, sem er gott því að það er metnaðarfullt. Það eru 11.000 manns sem vildu koma til okkar í fyrra og það eru jafnvel enn fleira að koma. (IngS: Og húsnæðislaus.)

Staðan er auðvitað sú að við erum að glíma við ójafnvægi á húsnæðismarkaði. Það sem ég heyri hér, (Gripið fram í.) er að allir, hvar í flokki sem þeir standa, eru þó sammála um að markaðnum er ekki treystandi fyrir því. Það þarf að stíga inn af opinberum aðilum. Mér heyrist að það séu allir tilbúnir til þess, enda höfum við aldrei gert það, það hefur aldrei verið nein stefna, við erum að leggja hana fram. Við erum komin fram með sameiginlega framtíðarsýn sveitarfélaga og ríkis. Við erum smíða (Gripið fram í.) tíu ára samning og við erum að segja: Hann verður endurskoðaður látlaust, hv. þingmaður. Við erum ekki að segja að í dag eigi að byggja 37.000 íbúðir eða 35.000 íbúðir, alveg sama hvað gerist á næstu árum. Við erum að segja: Við erum komin plan. Það lítur út svona núna. Það getur litið út öðruvísi eftir eitt eða tvö ár en við erum komin með plan og við ætlum að vinna eftir því. Það er gríðarlega mikilvægt. Við erum með starfshóp á sviði þess að styrkja réttarstöðu leigjenda. Þar er allt til skoðunar, hvort sem það eru leigubremsur eða -þak (Gripið fram í.) eða hvað það er sem þarf. Við settum viðbótarfé inn í húsnæðisbæturnar núna síðast fyrir nokkrum mánuðum.

Það er rétt að staðan er að versna núna en ef þið takið fjármálastöðugleika Seðlabankans þá er það rangt að þúsundir heimila séu að fara yfir til bankanna. Bankarnir eiga að stíga inn og hjálpa þessum (Forseti hringir.) 12% sem voru með yfir 260.000 kr. í greiðslubyrði og meira í janúar. (Gripið fram í.) Einhver sá hópur hefur örlítið hækkað en hann var ekki stærri. En það er fullt af einstaklingum (Forseti hringir.) og þeir hafa það erfitt og það þarf að hjálpa þeim og bankarnir eiga að gera það. Þeir eiga ekki að taka húsnæðið af fólkinu og ég hef ekki áhyggjur af því. (HKF: … til í að tryggja það?)(IngS: Já, tryggja það … skjaldborgin.)