Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

svör við skriflegum fyrirspurnum.

[16:21]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það var fyrir 99 dögum að ég lagði fram skriflega fyrirspurn hér á Alþingi til fjármála- og efnahagsráðherra sem varðar ÍL-sjóðinn svokallaða sem hann hefur nú boðað að hann ætli að slíta með lagasetningu. Það var fyrir 99 dögum að ég lagði fram skriflega fyrirspurn hér þar sem ég vildi afla upplýsinga um Ríkisábyrgðasjóð og hvernig hæstv. fjármálaráðherra hefði á liðnum árum axlað þá lagalegu ábyrgð sína, samkvæmt lögunum þar, að gera Alþingi viðvart um stöðu sjóðsins og gera tillögur um aðgerðir til að koma jafnvægi á fjárhag sjóðsins. Við vitum að sú staða sem þar er uppi hefur legið fyrir í um áratug og í um áratug hefur fjármálaráðherra verið með þennan bolta. Hann hefur verið fjármálaráðherra og farið með yfirstjórn opinberra fjármála enda þótt sjóðurinn hafi verið í öðru ráðuneyti. Þingsköp gera ráð fyrir því að ráðherrar hafi að jafnaði 15 daga (Forseti hringir.) til að svara fyrirspurnum sem þessum. Það eru liðnir 99 dagar. Í millitíðinni sýnist mér sem frumvarp hafi fæðst hjá þessum ráðherra. (Forseti hringir.) Ég óska eftir liðsinni Alþingis við að fá fram þessi svör.