Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

svör við skriflegum fyrirspurnum.

[16:22]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Frú forseti. Það er alveg áhugavert hvernig þetta gerist aftur og aftur og endalaust. Það eru 15 virkir dagar sem er gert ráð fyrir að ráðherrar hafi til að svara fyrirspurnum. Við þurfum á ákveðnum hraða að halda hérna á þingi til þess að geta haldið í við ákveðna vinnslu þingmála og þess háttar til að fá upplýsingar frá yfirvöldum. Þannig að það skiptir alveg máli að sinna þessum tímafrestum. Vissulega eru sumar fyrirspurnir fyrirferðarmeiri og það er þá alveg skilningur kannski í þeim tilvikum, en það er hérna verið að tala um mjög — ja, það er bara ekki þannig. Það eru 20 fyrirspurnir sem eru með meira en 100 virka daga. Fyrirspurnin sem var minnst á hérna áðan er með 99 virka daga, það eru miklu fleiri dagar síðan fyrirspurnin var lögð fram en það eru 99 virkir dagar sem hafa liðið. Það er alveg óþolandi ástand. Þetta er eitthvað sem þarf að bregðast við. Ég spurði hæstv. forseta áður hvort í einhverjum tilvikum forseti hafi sagt bara: Nei, ráðherra, þú færð ekki frest til að svara þessari fyrirspurn. Gjörðu svo vel og kláraðu bara að skila svari.