svör við skriflegum fyrirspurnum.
Virðulegi forseti. Erindið er hið sama og ég ætla að játa það á mig að ég er með heimasmíðaða kenningu um að það sé ekki hending hvaða fyrirspurnum er svarað og hvaða fyrirspurnum er ekki svarað. Fyrirspurnir sem eru erfiðar eða þungar vegna pólitískra aðstæðna eiga það til að liggja ögn lengur. Svo háttar til um þessa fyrirspurn sem ég er að tala um núna og ég lagði fram til hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra varðandi tilgreind markmið um kolefnishlutleysi fyrir Ísland árið 2040. Eftir að hafa setið opinn fund með hæstv. ráðherra í gær í umhverfis- og samgöngunefnd get ég skilið að þessi svör hafi ekki borist, einfaldlega vegna þess að aðgerðir, stefna og jafnvel markmið stjórnvalda eru ekki ljós þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi endurnýjað heit sín og sé nú á sínu öðru kjörtímabili. Ég óska eftir liðsinni forseta um það að ýta við hæstv. umhverfisráðherra um að fá fram svör (Forseti hringir.) við þessari fyrirspurn því hún hefur þýðingu fyrir starf umhverfisnefndar sem á nú að vera að vinna í takti með ráðherranum ágæta.