Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

svör við skriflegum fyrirspurnum.

[16:26]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég tók mér smá tíma í að rifja upp hvaða fyrirspurnum frá mér er ósvarað af hálfu ráðherra, það er svo langt um liðið. En af því að við vorum hér í húsnæðisumræðu þá á ég inni tvær fyrirspurnir sem ekki hefur verið svarað um húsnæðismál, önnur er frá nóvember á síðasta ári og síðan hálfítrekuð núna frá því í mars. Þar bið ég innviðaráðherra um upplýsingar um hve mikið af íbúðarhúsnæði í Reykjavík, annars vegar í eigu einstaklinga og hins vegar lögaðila, er flokkað eftir eignum á hvern aðila, þ.e. ein, tvær eða fleiri. Ég held að þetta séu gríðarlega mikilvægar upplýsingar og geti hreinlega bara aðstoðað, því ég tók líka eftir því að hæstv. ráðherra kallaði áðan eftir betri umræðu um málið, byggða á upplýsingum og staðreyndum. En miðað við þann tíma sem það hefur tekið ráðuneytið að svara þessu þá verð ég að ganga út frá því að þessar upplýsingar liggi a.m.k. ekki fyrir og ráðuneytið er þá heldur ekki að byggja á heildarupplýsingum og réttri stöðu mála. Þannig að ég ítreka óskir þingmanna um að forseti aðstoði okkur við að fá þessar upplýsingar þegar þingveturinn styttist í annan endann.