Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

svör við skriflegum fyrirspurnum.

[16:27]
Horfa

Viðar Eggertsson (Sf):

Hæstv. forseti. Ég sendi skriflega fyrirspurn í byrjun mars á hæstv. félags- og vinnumálaráðherra, með leyfi forseta:

„Hvernig miðar áfram þeirri vinnu að „draga úr jaðaráhrifum tekjutenginga og tekjuskatts í almannatryggingum og gera kerfið gagnsærra og réttlátara“ eins og segir í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar frá 2021 þar sem einnig kemur fram að ríkisstjórnin ætli að bæta afkomu ellilífeyristaka og líta sérstaklega til þeirra sem lakast standa?“

Þegar skriflegt svar hæstv. ráðherra loks barst var það ansi rýrt og fjallaði nánast í engu um það sem spurt var um, kjör ellilífeyristaka. Þetta eru óásættanleg vinnubrögð og sneiða algerlega fram hjá því að svara raunverulegu spurningunni sem borin var upp.