svör við skriflegum fyrirspurnum.
Herra forseti. Ég fann aðra fyrirspurn frá 8. febrúar, fyrirspurn sem ég beindi til umhverfis- og orkumálaráðherra um málefni sem er nú töluvert í deiglunni núna, þ.e. ég spyr hvernig ráðherra hyggist stuðla að vernd friðaðs lands fyrir ágangi búfjár, hvað hann sé að gera til að tryggja að land, sem ekki nær lágmarksviðmiðum um ástand vegna bágrar stöðu vistkerfa, verði ekki fyrir eyðingu vegna sauðfjárbeitar en það er talið að 10–20% fjárstofnsins gangi á slíkum svæðum. Ég spurði ráðherrann hvort hann teldi nóg gert. Nú veit ég ekki hvort svarleysið þýðir að hann telji nóg gert eða hann telji ekki nóg gert — og hvað hann hyggst þá gera. Svar við þessari spurningu er líka mikilvægt innlegg í yfirvegaða umræðu sem byggir á staðreyndum sem er jú það sem við öll þráum. Þannig að ég óska enn og aftur eftir aðstoð forseta við að knýja þessar upplýsingar upp úr ráðherra.