svör við skriflegum fyrirspurnum.
Forseti. Mig langar að taka undir með þingmönnum sem hafa hér komið og talað um hversu langan tíma tekur að fá svör við fyrirspurnum. Mig langaði að slást í hópinn því að ég er sjálfur að bíða eftir svari við fyrirspurn til dómsmálaráðherra 26. janúar og velti því fyrir mér hvaða úrræði við þingmenn almennt höfum þegar ráðherrar láta dragast úr hófi að svara fyrirspurnum. Þetta er eitt það tæki sem við höfum til að veita aðhald, að spyrja fyrirspurna, afla gagna. Ég tek bara undir með þeim þingmönnum sem hér kalla eftir liðveislu forseta við að fá þessi svör fram því að við hljótum að vilja sameinast um það hér á Alþingi að við verðum að fá þessi svör. Við verðum að vita um hvað málin snúast og þetta er eitt tæki sem við höfum til þess.