fjarskipti o.fl.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjarskipti, lögum um íslensk landshöfuðlén og lögum um Fjarskiptastofu. Þar sem um er að ræða breytingu á þremur lögum er forsaga og undirbúningur frumvarpsins mismunandi. Bæði áformin um lagasetninguna og frumvarpið sjálft voru birt í samráðsgátt, en breytingarnar eru settar fram af ólíkum ástæðum. Þannig snúa breytingar á fjarskiptalögum varðandi heildsöluaðgang að fjarskiptanetum að markmiðum laganna, en ákvæði um þagnarskyldu Fjarskiptastofu varða stjórnsýslu stofnunarinnar. Aðrar breytingar á lögum um fjarskipti og breytingar á lögum um íslensk landshöfuðlén eiga rætur í vinnu sem átt hefur sér stað til að mæta netglæpum, sem einkum snúa að kynferðislegu ofbeldi gegn börnum, bæði á vettvangi Evrópusambandsins og eins hafa borist ábendingar frá stjórnvöldum hér á landi um sama efni, sem tekið hefur verið tillit til við gerð frumvarpsins.
Fjarskipti gegna lykilhlutverki við að tryggja mikilvæga innviði samfélagsins og eru grundvöllur fyrir þjónustu á svo mörgum öðrum sviðum. Því er sérstaklega mikilvægt að huga að því að öll umgjörð fjarskipta sé eins og best verður á kosið. Þrátt fyrir að Ísland standi mjög framarlega í alþjóðlegum samanburði hvað varðar grunnlag fjarskipta, þ.e. gæði og fjölda háhraðanettenginga á landsvísu, er einnig mikilvægt að tryggja næsta lag, þ.e. öryggi fjarskiptanna, til að grunnvirki þeirra nýtist sem best. Nauðsynlegt er að hafa frumkvæði á þessu sviði til þess að halda í við tækniþróun og nýta þau tækifæri sem bjóðast til úrbóta.
Í samræmi við þetta er þörf á nýju ákvæði í gildandi fjarskiptalög, um opinn aðgang að fjarskiptanetum sem notið hafa ríkisaðstoðar, til að mynda í gegnum Ísland ljóstengt. Setja þarf ný viðmið um verðlagningu slíkra neta og mikilvægt að veita Fjarskiptastofu heimild til að skera úr um ágreining varðandi verðlagningu, þegar hann er til staðar. Jafnframt er lagt til að stofnunin fái heimild til að veita undanþágu frá kröfu um að heildsöluaðgangur skuli byggjast á verðsamanburði, ef fyrirhuguð nýting á fjarskiptanetinu muni ekki standa undir slíku heildsöluverði. Á þessu er tekið í 2. gr. frumvarpsins.
Það þarf vart að hafa mörg orð um að netið sé notað sem vettvangur fyrir kynferðislegt ofbeldi gegn börnum og hefur slík brotastarfsemi vaxið hröðum skrefum, þannig að ekkert lát er á. Unnið hefur verið að því víða að finna leiðir til hamla gegn slíkri brotastarfsemi og hefur það m.a. verið gert á vettvangi Evrópusambandsins, með því að setja reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1232 um tímabundna undanþágu frá tilteknum ákvæðum tilskipunar 2002/58/EB, í þágu baráttu gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum. Breytingarnar fela í sér undanþágu frá strangri reglu um fjarskiptaleynd, sem síðarnefnda tilskipunin byggir á og er einnig að finna í gildandi fjarskiptalögum. Sérhæfður sjálfvirkur hugbúnaður hefur nú verið þróaður til að varna efni sem inniheldur kynferðislegt ofbeldi gegn börnum, sem fjarskiptafyrirtækin geta nýtt í þeim tilgangi. Ástæðan fyrir því að um tímabundna undanþágu er að ræða er að heildarendurskoðun stendur yfir á tilskipuninni sem verið er að veita undanþágu frá. Vænta má að hin tímabundna undanþága komi þá til skoðunar í þeirri heildarendurskoðun, sem verður þá vonandi varanleg. Á þessu stigi hefur reglugerðin sem geymir undanþáguna ekki verið tekin formlega upp í EES-samninginn, en ekki þykir ástæða til að bíða með að upptökuferlinu ljúki heldur nota tækifærið nú við framlagningu þessa frumvarps, með því að leggja til að undanþágan verði lögfest. Eins og áður segir er hún mikilvæg til að veita fjarskiptafyrirtækjum heimild til að bregðast við og nýta þá tækni sem til er, til að varna efni sem inniheldur kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Það er síðan undir hverju og einu fjarskiptafyrirtæki komið að nýta umrædda tækni. Óhætt er að segja að bæði með því að þessi undanþáguheimild sé lögfest á vettvangi Evrópusambandsins og eins með því að leggja til með frumvarpinu að skjóta lagastoð undir hana hér á landi, feli það í sér ákveðna hvatningu til fjarskiptafyrirtækjanna til þátttöku í þessari baráttu.
Lagastoð er skotið undir undanþáguna með breytingu á lögum um fjarskipti og er það nánar útfært í 1. og 3. gr. frumvarpsins.
Með 1. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 3. mgr. 1. gr. laganna þannig að fram komi að lögin geti gilt um efni sem sent sé á fjarskiptanetum, enda sé sérstaklega kveðið á um það í lögum. Í gildandi lögum segir í 3. mgr. 1. gr. að þau gildi ekki um efni sem sent sé á fjarskiptanetum.
Með 3. gr. frumvarpsins eru síðan lagðar eru til breytingar á 88. gr. laganna með því að veita fjarskiptafyrirtækjum heimild, við framboð á þjónustu sem ekki er tengd númerum, að nýta sjálfvirkan, tæknilegan búnað sem sérstaklega er ætlaður til að skanna fjarskiptaumferð fyrir efni sem inniheldur kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.
Þá er lagt til í frumvarpinu að rafrænum þjónustuaðilum verði gert kleift að bregðast við útbreiðslu barnaníðsefnis á netinu og er í þriðja lagi lagðar til breytingar á lögum um íslensk landshöfuðlén með það að markmiði að auka getu til að sporna við netglæpum, þar á meðal kynferðislegu ofbeldi gegn börnum.
Í 4. gr. frumvarpsins er með ákveðnum hætti verið að styðja við það með tillögu um breytingu á 2. mgr. 9. gr. laga um íslensk landshöfuðlén, með því að bæta við ákvæðið kröfum um lágmarks skráningarupplýsingar til að gera það auðveldara að afla upplýsinga um ábyrgðaraðila tiltekinna léna, í tengslum við rannsókn mála hjá lögreglu eða öðrum stjórnvöldum. Ætlunin er að auðvelda lögreglu og eftir atvikum öðrum þar til bærum yfirvöldum að takast á við glæpi á netinu, með því að skerpa á heimildum lögreglu og verklagsreglum milli lögreglu og skráningarstofu íslenskra léna.
Þá er í 5. og 6. gr. frumvarpsins lagðar til breytingar á 11. gr. laganna um íslensk landshöfuðlén.
Í 5. gr. er lögð til breyting á b-lið 1. mgr. 11. gr. laganna, sem varðar heimildir lögreglu í 1. mgr. sömu lagagreinar til að krefjast þess, að undangengnum dómsúrskurði, að skráningarstofa loki léni sem skráð er undir íslensku landshöfuðléni í nánar tilgreindum tilvikum. Með breytingunni í frumvarpinu er vísað til efnis sem er til þess fallið að hvetja til eða stuðla að broti á almennum hegningarlögum sem varðað getur að lögum sex ára fangelsi eða miðlun efnis sem getur varðað við önnur hegningarlagaákvæði sem hafa lægri refsingu. Er upptalning ákvæða almennra hegningarlaga sett fram til að hægt sé að bregðast við t.d. stafrænu kynferðisofbeldi og hatursorðræðu. Með þessari breytingu er ætlunin að brot gegn persónulegum hagsmunum njóti ekki lakari verndar en t.d. brot gegn fjárhagslegum hagsmunum á borð við fjársvik og þjófnað sem varða sex ára fangelsi. Skilyrðið í b-lið um að ríkir almanna- eða einkahagsmunir þurfi að vera til staðar til að krafist verði lokunar léns yrði nýmæli í lögunum. Er skilyrðið sambærilegt því sem er að finna í ákvæði 83. gr. laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008, er varðar stafrænar rannsóknarheimildir. Mat á því hvort að ríkir almanna- eða einkahagsmunir þurfi að vera staðar þarf ávallt að fara fram þegar krafist er lokunar léns. Í lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, sem leystu af hólmi lög um meðferð opinberra mála, nr. 19/1991, er ekki vísað til opinberra mála lengur heldur sakamála og því er í b-lið 5. gr. frumvarpsins lagt til að vísað verði til rannsóknar sakamáls í 2. mgr. 11. gr. í stað opinbers máls.
Í 6. gr. frumvarpsins er síðan lagt til að lögfest verði ný grein, 11. gr. a., sem geymi heimild skráningarstofu til að veita lögreglu og héraðssaksóknara, netöryggissveitinni og Persónuvernd upplýsingar um rétthafa léns og tæknilegan tengilið þess. Mikilvægt er að skráningarstofa geti veitt löggæsluyfirvöldum þessar upplýsingar í tengslum við rannsóknir sakamála, netöryggissveitinni í tengslum við greiningu netöryggisatvika og til að geta tekið á t.d. svikapóstsmálum. Þá berast Persónuvernd oft kvartanir á grundvelli persónuverndarlaga.
Virðulegi forseti. Í fjórða og síðasta lagi er í 7. gr. frumvarpsins að finna tillögu um breytingu á lögum um Fjarskiptastofu með því að lögfesta þagnarskyldu stofnunarinnar vegna gagna og upplýsinga um netöryggi á sviði fjarskipta. Þagnarskyldan varðar viðkvæm öryggisgögn og nauðsynlegt að þau séu undanþegin upplýsingarétti almennings, en sambærileg ákvæði er að finna í fjarskiptalögum og lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, nr. 78/2019. Það er óheppilegt að þessi þagnarskylda sé ekki til staðar í lögum um Fjarskiptastofu, í tengslum við stjórnsýsluframkvæmd stofnunarinnar, en um er að ræða gögn, sem teljast sérstaklega viðkvæm og mikilvæg í rekstri fjarskiptafyrirtækja.
Virðulegi forseti. Eins og heyra má af þessari yfirferð minni yfir ákvæði frumvarpsins eru hér á ferðinni breytingartillögur varðandi aðgengi að fjarskiptanetum og stjórnsýslu Fjarskiptastofu sem skipta máli, en óhætt er að segja að mikilvægustu breytingarnar varði breytingar á fjarskiptalögum og lögum um íslensk landshöfuðlén sem ætlað er að leggja baráttunni gegn netglæpum og sérstaklega kynferðisofbeldi gagnvart börnum á netinu lið. Það er nauðsynlegt að sporna gegn slíkum glæpum með öllu tiltækum ráðum. Ég trúi því að allir geti tekið undir það og stutt af heilum hug.
Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og 2. umr.