fjarskipti o.fl.
(Forseti (AIJ): Það er eitthvað ólag á klukkunni í borðinu þannig að forseti vonar að þingmenn viti hvað tvær mínútur eru lengi að líða.)
Forseti. Ég þakka hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fyrir kynningu á frumvarpinu. Mig langaði að byrja á að vekja athygli á nýyrði sem er að finna í 2. gr. frumvarpsins, sem er jafnræðisvið, þó að mig gruni að þetta hafi ekki átt að vera nýyrði heldur hafi átt að vera þarna bil, jafnræðis við. Ég hvet til þess að það verði kannað hvort þetta nýyrði eigi að standa eða hvort það standi til að breyta því. En hvað varðar 2. gr. þá langaði mig líka til að spyrja hvort þar væru sett einhver markmið eða aðgerðir sem tryggi samkeppni. Að lokum langar mig að víkja að 3. gr. og spyrjast fyrir um hvort hún sé í raun bara fullkomin Evrópuinnleiðing eða hvort þarna séu einhverjar viðbætur frá ráðuneyti eða ráðherra sem varða það mál.