153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

fjarskipti o.fl.

947. mál
[16:43]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við lagfærum þetta, ég bind vonir við að hv. nefnd lagfæri þessa innsláttarvillu í frumvarpinu og hafi bil. En varðandi 2. gr. þá er spurt almennt um samkeppni og við erum auðvitað búin að stuðla að góðum samkeppnismarkaði á fjarskiptamarkaði og lögin sem voru innleidd hér, lög um fjarskipti, heildarendurskoðun á þeim, ýtir undir ákveðið samstarf þar sem er markaðsbrestur, þar sem okkur vantar sterkari nettengingu, sterkara símasamband og annað. Hér er verið að tryggja að það séu ekki hindranir, það séu leiðir og tól hjá Fjarskiptastofu til að skera úr um ágreining sem verður t.d. þegar Neyðarlínan er að fá aðgang til að tryggja betri fjarskipti á ákveðnum svæðum. Við erum að reyna að tryggja öryggi í þessari 2. gr. En í lögunum um fjarskipti í heild sinni erum við auðvitað að ýta undir heilbrigða samkeppni á þessum markaði ásamt líka ákveðnu samstarfi þar sem við á til að við getum stigið stærri skref, sérstaklega gagnvart ákveðnum hlutum á stofnvegum og á landsbyggðinni. En 3. gr. byggir eingöngu á Evróputilskipun, við töldum mikilvægt að koma með hana bara strax þó að hún hafi ekki verið innleidd en það er engu við bætt úr ráðuneytinu.