fjarskipti o.fl.
Forseti. Ég vil þakka ráðherra fyrir svarið. Það sem ég var kannski fyrst og fremst að horfa til hvað varðar samkeppni er að þetta er í eðli sínu starfsemi sem útheimtir mikinn og flókinn og dýran tæknibúnað og þarna þurfi að tryggja að nýir aðilar geti með einhverjum hætti rutt sér til rúms þrátt fyrir þá aðila sem fyrir eru á markaði, sem geta verið afar stórir. Það sé hætta á að það geti verið ómögulegt fyrir nýja aðila að keppa við þá ef þeir eru orðnir það stórir og mögulega þurfi að kanna og tryggja að það séu tækifæri fyrir nýja aðila að koma inn á markaðinn.