fjarskipti o.fl.
Forseti. Ég kann tæknina í þessu ágætlega en lausnin getur aldrei verið að lesa öll samskipti allra, þó að flaggað sé einungis því sem tæknibúnaðurinn segir að sé athugavert. Það býður upp á svokallað „phishing“ t.d., fólk getur kannski borið það saman við svokallað „Rickrolling“, þ.e. þegar fólk fær sendan tengil sem það smellir á en þá kemur ekki myndbandið eða eitthvað annað sem fólk bjóst við að sjá heldur sér það Rick Astley syngja Never gonna give you up. Ef fólk nær óvart í eitthvert slíkt efni sem þessi búnaður flaggar sjálfkrafa þá er það óvart búið að brjóta lög, óvart komið á einhvern frekar slæman lista yfir kynferðisafbrotamenn. Þetta er bara rosalega erfitt. Það er svolítið héðan sem Píratar koma, það átti að nota brot á höfundaréttarlögum til að réttlæta allsherjarnjósnir á fólki til að finna það þegar tveir aðilar voru að deila á milli sín höfundaréttarvörðu efni. Það er kaldhæðnislegt að það er nákvæmlega sami hugbúnaður og var búinn til til þess að reyna að koma í veg fyrir það sem er notaður í þetta. Tæknina kann ég alveg en afleiðingarnar eru þær að það er verið að hlusta á alla nettraffík. Hvernig sem reynt er að snúa út úr því þá þarf að gera það til að sjá þessa einu mynd eða myndband sem rennur í gegn. Það sem er kannski augljósast í þessu fyrir fólk sem er í tæknigeirum er að ekkert af því sem er dulkóðað finnst með þessu en þar eru öll samskiptin í þessu ólöglega fyrirbæri þannig að þetta myndi ekki ná utan um nákvæmlega það, þar sem vandinn liggur, þegar allt kemur til alls.