Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

fjarskipti o.fl.

947. mál
[16:58]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Hvernig er hægt að vera á móti þessu, á móti því að koma í veg fyrir að það sé brotið kynferðislega á börnum? Það er ekki hægt. En hvernig á að koma í veg fyrir það er alltaf risastór spurning. Er réttlætanlegt að koma í veg fyrir það með því að stunda allsherjarnjósnir á allri netumferð, jafnvel þó að það sé með einhverjum búnaði sem á bara að finna og merkja viðkomandi efni þar sem brotið er á börnum? Er tryggt að það sé eina notkunin eða er það fyrsta skrefið? Er það svona fótur inn fyrir dyrnar sem býr til aðgang að skönnun á öllum öðrum mögulegum brotum þegar allt kemur til alls?

Þetta frumvarp gefur fjarskiptafyrirtækjum heimild til að setja upp svona búnað, skyldar þau ekki til þess. En það er verið að ræða skylduna til þess að gera það á vettvangi Evrópusambandsins í dag, svokallað „chat control“, eða að stjórna spjalli ef við þýðum það beint. Það breytir því þó ekki, hvort sem þetta er heimild eða skylda, að þetta er tæknilegur möguleiki, löglegur möguleiki til að setja búnað á alla netumferð til að skoða innihald netumferðarinnar, samskiptanna. Það er ekkert öðruvísi í rauninni en að setja búnað á öll símkerfi þannig að í öllum símtölum sem við eigum sé verið að hlusta eftir ákveðnum lykilorðum. Það er ekkert öðruvísi við þetta hérna, ekki neitt, þó að það væri einhver gervigreind á bak við sem væri að greina þetta og myndi flagga einhverju: Hérna finnst mér ég vera að heyra eitthvað óeðlilegt, best að láta lögregluna vita svo að hún geti sent sérsveitina af stað eða eitthvað svoleiðis til að handtaka fólk sem er að tala saman í síma.

Það er önnur vídd í þessu sem gerir þetta allt svo mikið flóknara og það er dulkóðun. Fyrir nokkrum árum síðan stakk þáverandi innviðaráðherra, Ögmundur Jónasson, upp á því að einfaldlega banna dulkóðun sem er stjarnfræðilega galin hugmynd til að byrja með af því að dulkóðun sem slík er mörg hundruð ára, ef ekki þúsund ára gömul, hefur fylgt okkur í rauninni frá því að við tókum upp skrifleg samskipti. Alls konar afkóðunartæki voru notuð, held ég, alveg frá tímum Rómverja og örugglega fyrr, til að vernda mikilvæg samskipti milli aðila, hernaðarleyndarmál og slíkt. Nú til dags eru það bankaviðskipti og í rauninni öll samskipti sem við eigum í á netinu vegna þess að við erum í heimi samskiptamiðla, samfélagsmiðla þar sem er að finna ýmiss konar upplýsingar sem varða friðhelgi einkalífs. Friðhelgi einkalífs er enginn brandari sem við eigum að henda undir rútuna bara af því að við myndum vilja stunda allsherjarnjósnir til að koma örugglega í veg fyrir það að hryðjuverkamenn geti átt í samskiptum eða að einhverjir geti brotið kynferðislega á börnum.

Þetta er rosalega erfiður málstaður að verja því að, eins og ég segi, við viljum að sjálfsögðu koma í veg fyrir að það sé brotið kynferðislega á börnum og að sjálfsögðu viljum við koma í veg fyrir að hryðjuverkamenn og ýmsir slíkir geti skipulagt einhverjar hryllilegar árásir. En gerum við það með allsherjarnjósnum? Það er risastóra spurningin. Ég held að svarið hljóti og verði alltaf að vera: Nei, við gerum það ekki þannig.

Ástæðan er einmitt dulkóðun því að það er ekki hægt að nota svona búnað til að lesa dulkóðuð samskipti sem þessir aðilar, sem þessari tækni er beint að, nota alltaf. Þar liggur þessi vettvangur. Þannig að eina fólkið sem þetta beinist að er fólkið sem í grandvaraleysi á í samskiptum á ódulkóðaðan hátt. Þar er fólkið sem gæti lent í því að fá send frá einhverjum nafnlausum aðilum einhver myndbönd sem svona hugbúnaður myndi flagga og segja: Heyrðu, þú náðir í ólöglegt myndband, gjörðu svo vel, hérna er dómur, við erum með alveg grjótharðar sannanir fyrir þessu. Er hægt að segja: Þetta var bara tengill sem ég smellti óvart á, ég vissi ekkert hvað ég væri að fá? Væri það málsvörn? Kannski, en það er erfið málsvörn að flytja. Það er erfitt að þurfa að flytja málsvörn yfirleitt, að þurfa að standa í því að verja sig á þann hátt ef viðkomandi lendir í svoleiðis atburði.

Hvað mig varðar þá er þessi áætlun Evrópusambandsins um að leyfa í rauninni svona allsherjarnjósnir — við vitum að ríki, stjórnvöld, stórfyrirtæki, heimsveldi, eru að njósna um okkur dagsdaglega. Snowden kom upp um það. Það er enn í gangi en hérna á bara að gera þetta löglega. Hérna er tækið sem gefur aðganginn og ekki bara fyrir stjórnvöld víðs vegar um heim heldur líka óprúttna aðila. Þetta býr til ákveðinn aðgangspunkt að samskiptum sem óprúttnir aðilar gætu jafnvel misnotað. Það að hafa aukatæki í öllu samskiptanetinu sem er gagngert búið til til þess að lesa alla netumferð þýðir að það er þvílík gullnáma að komast í það tæki, ná aðgangi að því tæki og fá þá sjálfkrafa allar upplýsingarnar sem fara þar í gegn. Þar er ekki bara efni sem er mögulega brot á höfundaréttarlögum eða samskipti milli hryðjuverkamanna eða kynferðisbrot gagnvart börnum. Þar er allt annað líka sem er löglegt en eðlilega varið réttinum um friðhelgi einkalífs.

Þetta er stórt vandamál að glíma við. Viljum við fara í svoleiðis allsherjarvernd og passa upp á allt og alla? Væntanlega nýta stjórnvöld, sem eru kannski í gerræðislegri kantinum, tæknina aðeins meira en leyfilegt er. Ah, en þetta var nú samt vel meint, við vildum koma þessu á til að koma í veg fyrir hluti en þetta er misnotkun, það má ekki. En það mun samt gerast. Það verður mun auðveldara með þessu fyrirkomulagi.

Já, því miður held ég að við verðum að sætta okkur við erfiðari leiðina, þá leið sem við höfum verið að nota alveg hingað til. Við þurfum að fara í gegnum dómskerfið þegar verið er að leita að sökudólgum, það þarf að leita eftir heimildum til að hlera, það þarf að fá úrskurð dómara til þess af því að friðhelgi einkalífs eru okkar borgaralegu réttindi.

Við erum með annað frumvarp hérna sem fjallar um njósnaheimildir lögreglu. Það er ekkert mikið öðruvísi en þetta þegar allt kemur til alls. Það er mjög merkilegt að sjá í rauninni. Hér vorum við með frumvarp í gær sem fjallaði um kosningaaldur í íbúakosningum sveitarfélaga þar sem er verið að lækka þann kosningaaldur niður í 16 ár. Það er ráðherra sem leggur til að það verði gert, leggur ekki til að almenni kosningaaldurinn verði lækkaður niður í 16 ár. Ráðherra segist leggja það í hendur þingsins að ákveða það, það er greinilega ekki skoðun ráðherra að það eigi að leggja það til í frumvarpinu sjálfu heldur gerir Alþingi eins og það vill og greiðir atkvæði um það eins og það vill o.s.frv. En í þessu frumvarpi er það ráðherra sem leggur til þessa breytingu, að hægt sé að setja upp búnað sem einfaldlega hlustar á öll netsamskipti allra alltaf. Vissulega er markmiðið göfugt en tilgangurinn helgar ekki meðalið, gerir það bara alls ekki. Við ættum að hafa lært af því, svona heimssögulega séð, hversu slæm hugmynd það er að gefa yfirvöldum tækifæri á því að njósna um allt og alla. Það eru engin góð söguleg dæmi um að það hafi verið góð hugmynd. Engin.