Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

fjarskipti o.fl.

947. mál
[17:09]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Það sést kannski á mælendaskránni núna í þessu máli að það eru fjórir tölvunarfræðingar sem sitja á þingi fyrir Pírata akkúrat núna. Þetta er að vissu leyti dálítið tæknilegt mál og ég held að það sé mjög mikilvægt þegar þetta mál verður skoðað af þeirri nefnd sem það fær í hendur að nefndin fái góða innsýn í tæknilegu hliðina, sér í lagi á 3. gr. Hún hljómar eins og hún sé mjög einföld og það sem er verið að reyna að ná fram með henni er að sjálfsögðu eitthvað sem við öll vonandi stöndum fyrir, að berjast gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum. En ekki bönnum við öll börn eða allar myndavélar eða alla fullorðna til að stöðva þetta, við þurfum að finna hvernig við gerum þessa hluti á sem markvissastan hátt og sannleikurinn er sá, eins og hv. þm. Björn Leví Gunnarsson benti á, að flestir þeir sem eru að leita sér að svona efni dulkóða sín samskipti. Þá ná kerfi eins og þessi alls ekki til þeirra samskipta sem í rauninni er verið að reyna að ná til. Í staðinn er opnað á alls konar hættur. Það er nefnilega þannig að þegar við setjum einhvern búnað inn hjá fjarskiptafyrirtækjunum, búnað sem öll samskipti fara í gegnum, þá opnum við mjög hættulega öryggisholu í því að ráðast á og nýta sér gögn sem fara þarna í gegn vegna þess að hvert einasta tæki sem við bætum inn er eitt tæki í viðbót, ein leið í viðbót fyrir þá sem vilja brjótast inn í gögn og fjarskipti, ein leið í viðbót til þess. Þó svo að þarna sé verið að reyna að gera góða hluti þá verðum við að passa að það búi ekki til í rauninni meiri hættur á öðrum sviðum á sama tíma.

Það er þannig í sumum ríkjum, við vitum alveg um þó nokkur ríki, þar sem er fylgst með allri nettraffík og jafnvel bannað að nota dulkóðun og ýmislegt og þar eru einmitt mannréttindi oft mjög brotin. Við erum hér að opna á það að óprúttnir aðilar, nú eða ríkið, ef það verður einhvern tímann það spillt að það fer að hlusta á öll fjarskipti allra, geti gert alls konar hluti sem eru jafnvel enn verri en það sem við erum að reyna að takmarka hér.

Þetta kemur frá Evrópusambandinu. Það er mikilvægt að átta sig á því að um er að ræða tímabundna tilskipun. Þar eru menn enn að reyna að átta sig á því hvort þetta hafi yfir höfuð farið í rétta átt. Við þurfum miklu frekar að finna aðrar leiðir og mun öflugri til þess að ná þeim sem eru að senda á milli sín myndir og annað sem sýna kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Það viljum við alls ekki að líðist og því miður er það að aukast. En það verður ekki stoppað með svona tækjum. Við þekkjum það í allri brotastarfsemi að um leið og við setjum hindrun á einn stað þá finna menn aðrar leiðir. Í gegnum tíðina tíðkaðist nú að smygla bjór til Íslands og sígarettum. Þetta var alltaf ákveðinn leikur milli tollaranna og þeirra sem voru að smygla, einhvern tímann festu þeir sígaretturnar upp og máluðu yfir þær þannig að þær litu út eins og þær væru bara einhver panell í káetunum. Svo fattaðist það og þá hættu þeir að nota það og settu sígaretturnar einhvers staðar annars staðar og svo koll af kolli. Tæknin er einfaldlega að breytast það hratt að það sem verið er að tala um hér skapar meiri hættu og nær ekki þeim sem er verið að berjast við. Ég hefði miklu frekar viljað sjá okkur setja meira fjármagn í rannsóknardeild kynferðisbrota þar sem þeir geti keyrt þessi mál miklu hraðar í gegn.

Það er von mín að sú nefnd sem fær þetta mál, virðulegi forseti, umhverfis- og samgöngunefnd sem hefur með þennan hluta fjarskipta að gera — annað af fjarskiptunum fellur undir atvinnuveganefnd, ég næ því aldrei hvert hlutirnir fara hérna innan þings — fái góðar tæknilegar útskýringar á þessu til þess að menn átti sig á því hvort hér sé verið að fara í rétta átt eða ekki og hvort aðrar leiðir til að ná þessu fram séu jafnvel betri.