Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

fjarskipti o.fl.

947. mál
[17:17]
Horfa

Halldór Auðar Svansson (P):

Virðulegur forseti. Líkt og háttvirtur kollegi minn, Gísli Rafn Ólafsson, kom inn á í sinni ræðu er mælendaskráin heldur einsleit í dag en það helgast að sjálfsögðu af því að þetta málefni er bæði Pírötum mjög mikilvægt og sér í lagi okkur fimm sem erum tölvunarfræðingar innan Pírata. Netfrelsismál og allt því tengt er ein af ástæðunum fyrir því að Píratar voru stofnaðir á sínum tíma þannig að þetta er ákveðið grundvallarmál.

Ég ætla sem sé að tala aftur um 3. gr. Mér finnst hinar greinarnar í besta falli til bóta og í skásta falli hættulausar. Þessi 3. gr. hins vegar, eins og aðrir hafa komið inn á, vekur miklar spurningar. Þarna er á ferðinni svolítið gamalkunnugur draugur, þessi draugur þeirra hugmynda um að leiðin til að taka á ákveðnu efni á netinu sé að skanna bara allt saman og svo sé hægt að flagga því og grípa það. Það er þó alla vega viðurkennt þarna að það er beinlínis markmiðið að skanna allt. Ég man eftir því fyrir einhverjum árum að þegar svona hugmyndir um einhverjar netvarnir og skildi á netinu voru uppi að þá voru menn stundum með þær grillur að það væri hægt að gera það án þess að skanna allt og án þess að hafa þetta almennt. En hér er greinilega hugsunin komin aðeins lengra varðandi það. Já, til að grípa svona tilteknar tegundir efnis þá þarf að skanna allt saman. Ég ætla svo sem ekki að bæta mjög miklu við það sem þeir sem komu hér upp á undan röktu um vandamál sem felast í því og hættur en ég vildi samt einna helst staldra við afmörkunina. Þetta er í raun almenn heimild sem er verið að gefa. Það er ekki talað um hvernig búnaður þetta er, hvað má geyma og hvað má ekki geyma o.s.frv. og ekki síst þá er ekkert talað um hvað á að gera við þetta efni ef það er gripið. Í hvaða tilgangi fer þessi vöktun fram? Hver er þá skyldan um samstarf við t.d. löggæslu? Hvað skal gera þegar svona efni er gripið og einhver fær þá ábyrgð í hendur að leggja mat á hvers eðlis það er og hvað á að gera við það? Það er mjög vandasamt því það er alveg vitað mál og meira að segja eru rannsóknir sem sýna að þessi búnaður er mjög ónákvæmur, hann er ekki nákvæmur. Hann getur verið að grípa alls konar efni sem er í rauninni ekki það sem er verið að leita að.

Mér finnst þessir þættir allir leiða svolítið til að það falli óhjákvæmilega á umhverfis- og samgöngunefnd að fara vel yfir þetta, ekki bara tækniþættina í þessu og reyna að afmarka einhvern veginn hvers konar búnað sem þetta nær yfir heldur líka bara að taka afstöðu til þess hvort þetta ákvæði eigi heima í lögum og í þessu frumvarpi að þessu sinni. Líkt og kveðið er á um í 1. gr. þá er beinlínis verið að breyta fjarskiptalögum samhliða til að opna á það að fjarskiptalög geti náð yfir efni á fjarskiptanetum en ekki bara netið sjálft sem er að sjálfsögðu mjög viðamikil breyting í sjálfu sér. Ég ætla bara að varpa því fram hvort þessi breyting sé ekki mögulega það viðamikil, snúin og flókin að hún eigi kannski heima í sérstöku lagafrumvarpi, ef ætlunin er að innleiða þetta á annað borð, þar sem er farið aðeins ítarlegar í þetta en hér er gert, þar sem þetta kemur inn sem eitt ákvæði í annars ágætu frumvarpi, og farið aðeins betur yfir álitamálin.

Ég vil ítreka það að lokum aftur varðandi þessa almennu skönnun að hún er alltaf almenn. Jafnvel þó að það sé einhver sjálfvirkni í gangi sem grípur ákveðið efni og flaggar því þá þarf þetta kerfi sem er innleitt í sjálfu sér alltaf að skanna allt. Hv. þm. Björn Leví Gunnarsson kom inn á uppljóstrun Edwards Snowdens árið 2013 á víðtækri skönnun leyniþjónustu í Bandaríkjunum á netumferð sinna borgara. Sá búnaður var þess eðlis að hann vaktaði allt en flaggaði síðan bara ákveðnu efni og sendi það áfram. Þannig að þetta eru, svo ég ítreki það, í rauninni alltaf sömu prinsippin sem eru í gangi óháð tækniatriðum. Þetta er þessi spurning hvort það eigi að leyfa svona almenna vöktun og skönnun eða ekki. Gott og vel, kannski er það óhjákvæmilegt. Við vitum það að netþjónustuaðilar sjálfir hafa vald til að gera þetta. Þetta hefur verið innleitt á ýmsan hátt og þeir sem fá kannski mjög stóran hluta af netumferð eins og Google skanna hana alveg villt og galið og nýta á alls konar hátt í gróðatilgangi og til að vinna alls konar upplýsingar úr þessu sem við kannski vitum ekkert alveg endilega hverjar eru eða hvernig er farið með. En þó að þetta sé óhjákvæmilegt kannski og þó að málstaðurinn sé vissulega góður sem er hérna verið að berjast fyrir, þá hljótum við að þurfa að spyrja hver afmörkunin er nákvæmlega, hvað má gera með þessa vöktun og hver ber t.d. ábyrgð á eftirliti með henni og þar fram eftir götunum.