Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélagi á Íslandi til ársins 2025.

982. mál
[17:58]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, fyrir góða kynningu á þingsályktunartillögu sem virðist vera afar metnaðarfull. Það er mjög ánægjulegt að sjá marga þætti hér, sérstaklega ánægjulegt að sjá gervigreind sérstaklega ávarpaða sem er náttúrlega eitthvað sem hefur bara á síðustu dögum, vikum og mánuðum verið að ryðja sér sífellt meira og meira inn í okkar raunveruleika. Það er alveg ljóst að til þess að við náum árangri þá þurfum við bæði að nýta okkur þau tækifæri sem í gervigreindinni felast og takast á við þær áskoranir sem hún óhjákvæmilega hefur í för með sér. Við sjáum nú þegar þess dæmi um að það eru skuggahliðar á gervigreind og við þurfum að bregðast við því. Ein tegund gervigreindar eru þessir algóritmar, eða reiknilíkön, svo við notum íslenskuna, stórfyrirtækja sem matreiða efni ofan í notendur samfélagsmiðla. Þetta væri eitt af því sem ég væri gjarnan til í að væri skoðað, þ.e. hvort það sé hægt að hafa, ekki endilega áhrif en hvort það sé mögulegt að stýra því að þessi reiknilíkön séu landinu til góðs og reyna að hafa áhrif á hvernig sú útfærsla er hjá stóru tæknifyrirtækjunum því að við erum óhjákvæmilega ansi mikið háð umheiminum þegar kemur að þessum stóru samfélagsmiðlum.