Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélagi á Íslandi til ársins 2025.

982. mál
[18:02]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og fyrst að ráðherra kemur inn á íslenskuna þá er alveg hárrétt að það er ekki lítið afrek hversu mikið hefur unnist í því að fá sjálfvirkar þýðingar og hversu mikið íslenskan hefur náð að festa sig í sessi sem tungumál sem hefur sess hjá tæknifyrirtækjunum. Nú hef ég reynslu sjálfur af því að læra örlítið um máltækni og við að greina íslensku og ensku og það eru t.d. margfalt flóknari greiningar sem þarf að gera til þess að meta íslenskt tungumál þannig að það er bara gríðarlega vel af sér vikið hversu vel er búið að koma því fyrir, svo það sé sagt. Ég tek undir þetta, það eru mikil tækifæri í þessu og það er alla vega mjög gott að heyra að við séum að vinna í að takast á við áskoranirnar því að þær verða fjölmargar. Ég ætla að koma betur inn á fleiri punkta í ræðu á eftir.