Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélagi á Íslandi til ársins 2025.

982. mál
[18:12]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla að fá að fagna líka þessari þingsályktunartillögu hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ég hef það líka sem hefð að fagna öllum menntamálum sem koma hingað inn. Þó að við séum auðvitað að ræða menntamál í víðara samhengi með nýsköpun og tækni þá er þetta vissulega eitthvað sem snýr að menntun þjóðarinnar og auðvitað Íslandi sem þekkingarsamfélagi, sem er auðvitað skemmtilegt markmið. Ég er líka mjög spennt að sjá hvernig framkvæmdin mun reynast og sjá það mælaborð sem mun lýsa framvindu aðgerða sem eru margar og listaðar upp í ályktuninni.

Háskólar eru auðvitað gríðarlega mikilvægar stofnanir í lýðræðislegu samfélagi og það er ofboðslega mikilvægt að við leggjum góðan grunn fyrir rannsóknir og vísindastarfsemi því það er auðvitað lykillinn að auknum lífsgæðum. Hlutverk háskólanna er auðvitað ekki bara að mennta einstaklingana heldur skila þeir svo miklu meira af sér til samfélagsins með þá auðvitað ýmiss konar rannsóknum og nýsköpun og annarri vísindastarfsemi. Meginmarkmiðið með uppbyggingu menntakerfisins verður auðvitað að vera líka aukin gæði í mennta- og skólastarfinu. Því fagna ég því að meginmarkmið í háskóla- og vísindastarfinu verði að auka gæði náms og námsumhverfisins í samkeppnishæfum háskólum, og ekki bara samkeppnishæfum háskólum innan lands heldur líka í alþjóðlegu tilliti.

Mig langar að fara svolítið yfir þessar stefnumótandi aðgerðir sem listaðar eru upp og taka þá bara þær sem mér finnst mjög spennandi og ég tel mikilvægt framfaraskref og hef vonandi eitthvað fram að færa í þeim málum. Sú fyrsta er auðvitað átakið í STEAM-kennsluaðferðum. Það er auðvitað þannig að það mun efla fjölbreytni hér og mæta kröfum atvinnulífsins og auðvitað vaxandi kröfum um hraðari tæknibreytingar í íslensku samfélagi. Það er auðvitað mikilvægt að það sé verið að leggja áherslu á gagnrýna hugsun. Það er mjög jákvætt. Ég velti þá líka fyrir mér hvort það megi skoða að leggja meiri áherslu á kennslu í STEAM-greinum og þjálfun í gagnrýninni hugsun á fyrri skólastigum til að undirbúa þá nemendur sem eru að koma inn á háskólastigið. Þó svo að þetta falli auðvitað kannski ekki undir þessa þingsályktunartillögu, þar sem ég er að tala um kannski grunnskólastigið og framhaldsskóla, þá held ég að þetta spili svo ofboðslega vel saman, að ef við byggjum grunninn upp góðan þá séu meiri líkur á að fólk sækist í og hafi áhuga á því að fara í þessar greinar seinna meir.

Svo er það aðgerð um fjölgun nemenda í heilbrigðisvísindum, sem er ofboðslega mikilvægt og við þekkjum það öll hér. Umræðan um heilbrigðismál snýst auðvitað oft líka um manneklu og mannaflaþörf og oft verið að tala um greiningu þar og við vitum að við þurfum að mennta fleiri í heilbrigðisvísindum. Það hefur t.d. komið fram í þessu aukna samstarfi háskólanna að það eigi að fara í að setja upp hermi- og færnisetur sem er ofboðslega mikilvægt því það hefur verið fyrirstaða í kennslu í heilbrigðisvísindum að aðgengi að klínísku námi er afar takmarkað. Það er mjög takmarkandi þáttur í því hversu marga við náum að mennta í heilbrigðisvísindum, þá hjúkrunarfræði og læknisfræði og fleiri greinum undir þeim hatti. Það er ofboðslega mikilvægt að við finnum leiðir til að skapa þar samfélag og betra aðgengi.

Þegar við erum að tala um fjölgun nemenda í heilbrigðisvísindum og mannaflaþörf í heilbrigðiskerfinu þá þurfum við líka að horfa á dæmi kanadíska hjúkrunarfræðingsins sem kom í fréttir um daginn sem var fastur í kerfinu og fékk ekki starfsleyfi. Það er algerlega óþolandi að fá svona fréttir þegar við höfum hæft starfsfólk sem vill vinna í íslensku samfélagi, að við séum enn að stuðla að því að þarna séu íþyngjandi reglur. Við eigum auðvitað að taka á þessu og það á að gera það og það er fagnaðarefni að liðka eigi fyrir viðurkenningu á menntun og starfsréttindum heilbrigðismenntaðs fólks frá ríkjum utan EES eins og kemur fram í þingsályktunartillögunni.

Svo er aukið samstarf háskólanna sem ég kom inn á áðan. Það er ofboðslega mikilvægt verkefni. Þetta hefur strax fleytt okkur gríðarlega langt áfram og hrint mjög mörgum mikilvægum aðgerðum í framkvæmd. Til dæmis er það mjög stórt að loksins er verið að auka aðgengi að tæknifræði og tæknimenntun í samstarfi við Háskólann á Akureyri. Lengi hefur verið kallað eftir því að aðgengi að tækninámi verði bætt á landsbyggðinni og því er þetta ofboðslega mikið fagnaðarefni. Við finnum alveg sérstaklega hvað það hefur mikil áhrif á samfélagið eins og þegar tölvunarfræðin kom í samstarfi HA og HR, hversu mikilvægt það er til þess líka að fá unga karlmenn í háskólanámið. Þeir sækjast oft frekar í þessar greinar og við viljum efla unga karlmenn um allt land og þá er þetta frábær leið til þess.

Við tölum oft um að styðja betur við atvinnulífið með því að íþyngja því ekki um of með reglusetningu. Við megum líka alveg hafa það í huga þegar kemur að menntakerfinu. Það má leita leiða til að ýta undir fjölbreyttara rekstrarform í skólakerfinu til að auka samkeppnishæfni og draga úr miðstýringu í skólastarfinu því við vitum að þegar valfrelsi í þjónustu er aukið þá leiðir það oftast til betri þjónustu fyrir alla. Ef við leyfum og ýtum undir fjölbreyttari rekstrarform í háskólunum þá gætum við líka ýtt undir meira samstarf og jafnvel sameiningu háskólanna.

Svo er fjallað um nýtt reiknilíkan fyrir fjármögnun háskólastarfs sem er ofboðslega mikilvægt því að reiknilíkanið var fryst 2015, að mig minnir. Það hefur verið mjög óhagstætt þeim háskólum sem hafa fjölgað nemendum en verið hagstætt þeim sem fækkað hafa nemendum af því að það byggist á nemendaígildum. Það er mjög mikilvægt að það eigi að taka tillit til fleiri þátta í nýju reiknilíkani og þetta er búin að vera mjög vond staða til að vera í, sér í lagi að það hafi liðið svona rosalega langur tími og skekkjan hefur auðvitað bara aukist. En á þessu verður tekið og ég legg áherslu á að það gerist hratt og vel og það verði einmitt lögð áhersla á gæði náms, það verði tekið á brottfalli nemenda. Það er bara gott og vel og ég hlakka til að sjá hvað verður úr þeirri vinnu.

Svo er punkturinn aukið jafnrétti í háskólunum, um sérstaka áherslu á fleiri unga karla í háskólanámi og aukið fjarnám. Við þurfum að fjölga körlum í öllum greinum og við þurfum að horfa til þess að fjölga konum í STEM-greinum. Við eigum ekki að vera feimin við að ræða stöðu drengja í skólakerfinu í heild sinni og það er gott að í þessari þingsályktunartillögu sé tekið á stöðu karlmanna í háskólum. Hlutfall karla í íslenskum háskólum fer hratt lækkandi og það er auðvitað bara áhyggjuefni út af fyrir sig og gott að verið sé að leggja sérstaka áherslu á það.

Undir þessum punkti er talað um öflugt fjarnám og aukið fjarnám. Það er sögð ein tryggasta leiðin til að jafna aðgengi mismunandi hópa að háskólanámi. Þá er ekki verið að einskorða það við landsbyggðina á móti höfuðborgarsvæðinu eða slíku. En ég verð auðvitað að nefna hversu mikilvægt fjarnám er fyrir landsbyggðina. Í þingsályktunartillögunni segir að aðgengi að háskólanámi sé nokkuð gott, ég get lítið annað en tekið undir það. En ég myndi vilja skoða hvernig aðgengi allra íbúa á landinu er að háskólanámi og í því samhengi leggja áherslu á fjarnám. Ég skil það að vilja leggja áherslu á fjarnám enda er eðlilegt að vilja halda frekar í unga fólkið í heimabyggð í stað þess að senda það í nám til höfuðborgarsvæðisins og freista þess að það snúi aftur, sem það gerir vitaskuld ekki alltaf því þetta eru mótunarárin. Nefna má sérstaklega að í ár eru 25 ár liðin frá því að fjarkennsla í hjúkrunarfræði hófst við Háskólann á Akureyri og þar er talsverð reynsla sem hægt er að byggja á til framtíðar, hvernig byggja á upp fjarnám. Þannig að þetta er ekki nýlunda, þetta er bara eitthvað sem við þurfum að víkka út. Það er auðvitað samkeppni um starfsfólk um allt land, það á ekki bara við á höfuðborgarsvæðinu. Við þurfum því að færa aðgengi að menntun nær fólkinu til að viðhalda byggð um allt land.

Þeir háskólar sem höfðu lagt áherslu á tækni fyrir Covid-19 heimsfaraldurinn, voru sem sagt með eitthvert fjarnám í boði eða sveigjanlegra form á námi, gátu mætt nemendum sínum miklu betur. Það sýnir hversu mikilvægt það er að tileinka sér jafnóðum þá tækni sem er í boði þegar kemur að einhverjum áskorunum í samfélaginu. Við þurfum að horfa til þess líka að efla fjölbreytta kennsluhætti í háskólunum og þar eru margar leiðir færar, nýstofnuð samtök menntatæknifyrirtækja og innan þeirra raða eru risavaxin fyrirtæki í menntatækniiðnaði, greinin er ung á Íslandi og hún er í hröðum vexti.

Ég sé að tíminn er að verða búinn en það er svo margt sem mig langar að segja. Förum aðeins í nýsköpun. Nýsköpun er auðvitað lykillinn að farsælum lausnum á áskorunum í nútímasamfélagi. Það er mikilvægt að við innleiðum nýsköpun í heilbrigðisþjónustu. Þjóðin er að eldast og við þurfum að huga að því. Þetta er auðvitað líka byggðamál þar sem aðgengi að heilbrigðisþjónustu er ekki jafn gott og á höfuðborgarsvæðinu. Þá þurfum við líka að horfa til þess að regluverkið sé ekki íþyngjandi, persónuverndarlög hamli ekki vexti og framþróun þegar við erum að horfa á aukna þjónustu til fólks. — Ég verð að láta hér staðar numið.