aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélagi á Íslandi til ársins 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og góðar pælingar og ég tek undir með henni að við skulum ekki vanmeta gott staðnám. Ég sjálf nam lögfræði við Háskólann á Akureyri, þar er lögfræðin nú vissulega komin í fjarnám en við vorum skikkuð í staðnám á sínum tíma og ég hefði ekki sjálf persónulega viljað missa af tengingunni við kennarana og samtalinu og öllum námsstundunum sem ég átti með samnemendum mínum á staðnum. Mér fannst það algerlega dýrmætt og ég held að við þurfum líka að bjóða upp á háskólasamfélag á staðnum, ekki bara háskólasamfélag í netheimum. En svo ég víki að spurningu hv. þingmanns varðandi tungumálakunnáttuna, hún sé hindrun í vegi þeirra sem vilja koma hingað og starfa og öðlast starfsréttindi, þá er þetta bara úrlausnarefni. Ég er alveg sammála hv. þingmanni að það er dýrmætt ef við höfum heilbrigðisstarfsfólk sem kann önnur tungumál en íslensku og ensku og getur skilið það fólk sem þarfnast heilbrigðisþjónustu hér af því að við erum ekki einungis að sjá vaxandi fjölda innflytjenda heldur líka bara vaxandi fjöldi túrista og það er gríðarleg áskorun í heilbrigðiskerfinu að mæta þeim. Ég man sjálf alveg eftir því að hafa sótt heilbrigðisþjónustu á bráðaþjónustunni á Sjúkrahúsinu á Akureyri og þar tók á móti mér maður sem kunni ekki íslensku. Þá var ég náttúrlega heppin að vera bara mjög flink í ensku og geta átt samtal við þann lækni. Ég myndi að sjálfsögðu vilja ryðja úr vegi öllum þeim hindrunum vegna fólks sem vill koma hingað og vinna og tungumálakennsla er auðvitað eitthvað sem við þurfum að efla og erum að efla.