aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélagi á Íslandi til ársins 2025.
Virðulegi forseti. Það er með mikilli gleði sem ég kem hér í pontu til að hrósa hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra vegna tillögu hæstv. ráðherra til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags hér á landi.
Í mínum fyrri störfum fyrir Samtök iðnaðarins var ég óþreytandi við að tala fyrir eflingu hugvitsdrifins hagkerfis hér á landi og mikilvægi þess að grunnur verðmætasköpunar í landinu verði breikkaður. Fyrir þjóð eins og okkar sem hefur í gegnum aldirnar treyst á auðlindadrifna verðmætasköpun er nauðsynlegt að færa verðmætasköpun okkar yfir til þeirrar auðlindar sem er endalaus og aldrei dvín, það er hugvitið.
Nær öll ríki sem við viljum bera okkur saman við hafa mótað stefnu í nýsköpun til framtíðar. Það gerðum við líka undir forystu þáverandi nýsköpunarráðherra, Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, árið 2019. Með því að marka stefnu getum við sett áherslu á það hvert við erum að fara og verðum við um leið skrefi framar í samkeppni við önnur lönd um mannauð og fyrirtæki. Allt snýst þetta um að vera skrefi framar í samkeppni og sú samkeppni er ekki bara íslensk, hún er alþjóðleg. Með þessu breikkum við grunn verðmætasköpunar eins og mér er svo tíðrætt um.
Viðfangsefni framtíðarinnar eru hvorki léttvæg né smávægileg. Bregðast þarf við umhverfis- og loftslagsvandanum með nýrri hugsun, nýrri sköpun. Bregðast þarf við öldrun þjóðarinnar með nýsköpun. Bregðast þarf við áskorunum í matvælaframleiðslu hér á landi með nýsköpun. Í heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu og svo mætti lengi telja þurfum við að bregðast við verkefnum framtíðarinnar og við gerum það eingöngu með nýsköpun því að nýsköpun eykur samkeppnishæfni okkar á öllum sviðum. Gleymum því ekki að til þess að gera Ísland að framúrskarandi landi hvað nýsköpun og þekkingu varðar þá gerum við það ekki án framúrskarandi menntunar. Við þurfum öflugt fólk úr iðn-, verk- og tæknigreinum. Við þurfum að fjölga iðnnemum því að sú menntun er einnig leið inn í tæknigreinar. Atvinnulífið kallar stöðugt eftir iðn- og tæknimenntuðu fólki. Til þess að íslenskt samfélag haldi áfram að vaxa og dafna þurfum við á fleiri iðn-, verk- og tæknimenntuðum einstaklingum að halda.
Við verðum að gæta þess að stíga varlega til jarðar hvað lögverndun iðngreina varðar. Við megum ekki missa sjónar á því að lögverndun þýðir gæði. Lögverndun þýðir að þú sért sérfræðingur í þínu fagi og að baki þínum starfsréttindum sé mikil og sérhæfð þekking. Við megum ekki gjaldfella gæði og þess eru dæmi um lönd sem hafa fellt niður löggildingu en eru nú að reyna að taka hana upp aftur. Það er ástæða fyrir því. Ef það er vilji hæstv. ráðherra að leggja niður lögverndun iðngreina þá legg ég til að það verði aðeins gert með heildstæðri endurskoðun á iðnlöggjöfinni og í samráði við hagsmunaaðila iðnaðar. Eins og ég nefndi hér fyrr í máli mínu þá er skortur á iðn-, verk- og tæknimenntuðu fólki og mér er það til efs að það að fella niður löggildingu iðngreina verði til þess að auka áhuga fólks á náminu. Löggilding kemur í veg fyrir fúsk og tryggir gæði, eins og ég nefndi hér áðan. Um það gilda rík öryggis- og almannahagsmunasjónarmið. Löggilding eykur neytendavernd, tryggir öryggi og tryggir heilsu. Gleymum því ekki að þúsundir manna og kvenna á Íslandi eru með lögverndað starfsheiti.
Ég vil sjá mun meiri sveigjanleika í námi hér á landi en verið hefur. Ég hef verið þeirrar skoðanir að nemendur eigi að geta sett saman sínar prófgráður í háskóla þannig að maður geti tekið kjarna í ákveðinni grein og svo bætt við sig einhverju allt öðru, eins og t.d. ljósmyndun, grafískri hönnun, vöruhönnun eða hverju sem er. Ég fagna því að leita eigi leiða til að auka aðgengi til náms alls staðar á landinu. Við fundum það vel í heimsfaraldri kórónuveirufaraldurs þegar háskólarnir okkar opnuðu dyr sínar í óeiginlegri merkingu fyrir auknu fjarnámi, að það var leið mjög margra einstaklinga hringinn í kringum landið til að bæta við sig námi, fara í langþráð meistaranám. Margt af því fólki hefur ekki getað klárað þetta nám vegna þess að um leið og við komumst út úr heimsfaraldrinum þá skelltu háskólarnir aftur, og þá vísa ég kannski helst til Háskóla Íslands, og fóru í gamla farið þannig að fólk sem er bundið í störfum sínum eða með fjölskyldur sínar fyrir norðan, austan og vestan hefur ekki getað klárað námið.
Hugverkaiðnaður sem fjórða stoðin í útflutningstekjum þjóðarbúsins hefur svo sannarlega fest sig í sessi. Hver hefði trúað því fyrir einhverjum áratugum að leikjaiðnaður væri stóriðja, að það væru fleiri hundruð manns á hverjum einasta degi á Íslandi að vinna við það að búa til tölvuleiki? Alvotech, í lyfjaþróun, er sömuleiðis stóriðja. Marel er stóriðja og Össur er stóriðja. Allt eru þetta fyrirtæki með fleiri hundruð eða nokkur þúsund starfsmenn og margir þeirra í mörgum löndum.
Að auka lífsgæði verður aðeins gert með nýsköpun. Við þurfum að búa til verðmætari störf. Nýsköpun ætti að eiga sér stað alls staðar í öllum greinum, í rótgrónum iðnaði sem og í sprotafyrirtækjum. En stærsta sóknarfærið fyrir okkur Íslendinga liggur í hugverkaiðnaði. Ég vil sjá að við byggjum hér umhverfi sem tekur utan um þá einstaklinga sem vilja ýta hugmyndum sínum úr vör þannig að umhverfið styðji við framtak fólks og sé hvetjandi. Þannig gerum við Ísland að spennandi stað sem unga fólkinu okkar langar til að búa á og skapa sína framtíð um leið og þau skapa verðmæti. Ég vil hvetja hæstv. ráðherra áfram til góðra verka á þessu sviði. Framtíðin er björt.