Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

fjölmiðlar.

979. mál
[19:20]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra, Lilju Dögg Alfreðsdóttur, fyrir kynningu á frumvarpinu. Það er um margt prýðilegt og sérstaklega finnst mér ánægjulegt að sjá að hér er verið að setja skorður við efni sem varðar hatursorðræðu og tel það mjög mikilvægt að við pössum upp á það. Slíkt efni getur verið mjög skaðlegt þeim sem verða fyrir slíkri orðræðu og það er eitthvað sem er brýnt að við pössum upp á.

En svo er annað sem er bara forvitni þess sem hér talar og það felur í sér spurninguna: Hvað er evrópskt efni? Er það landfræðilegt? Er það efni sem er framleitt innan EES? Er það menningarlegt? Væri í tilfelli Bretlands þá efni sem er framleitt í Bretlandi áður en það gekk úr Evrópusambandinu evrópskt efni en ekki lengur eftir að Bretar gengu úr því? Ég væri til í að heyra hvort það sé þá til tæmandi listi um það hvenær myndefni og slíkt uppfyllir þær kröfur að teljast vera evrópskt.