Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

fjölmiðlar.

979. mál
[19:22]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hans innlegg. Nú er það svo að við ræðum það sem er evrópskt efni, til að mynda íslenskt efni er evrópskt efni, svo ég nefni dæmi. Ég hefði haldið að breskt efni væri það líka. Ég held, eins og ég hef skilið tilskipunina og vona sannarlega að það sé réttur skilningur, að það gangi út frá landfræðilegri legu og eiginlega undantekningarlaust þá er verið að uppfylla þessi ákvæði um að efni sé a.m.k. 30% evrópskt. Þetta tengist þá mjög oft því að það sé verið að einblína á innlent efni sem er þá evrópskt efni út frá þessari tilskipun. Ég hafði áhyggjur af því, svo að ég viðurkenni það hér, að hér væri verið að setja ákveðnar kvaðir á og ákveðna stýringu á efni sjónvarpsstöðva. En þegar við fórum yfir það þá er það svo að flest eða öll ríkin sem munu innleiða þessa tilskipun uppfylla þessi skilyrði og gera það tiltölulega auðveldlega, að því er ég best veit.

Hvað varðar það að setja á þessar ákveðnu skorður þá er það löngu tímabært að mínu mati og við erum auðvitað í þessari ótrúlegu stafrænu byltingu og nýjasta þróunin er að sjálfsögðu máltæknin og gervigreindin. Að mínu mati eru mun meiri tækifæri fólgin í þessari nýju tækni en að sama skapi þá þurfum við að búa til ákveðinn ramma í kringum þessa þróun til þess að hún sé til hagsbóta og við getum þá spornað gegn því sem gæti mögulega haft neikvæð áhrif.