Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

fjölmiðlar.

979. mál
[19:24]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég heyri að við erum í svipuðum vangaveltum því að það eru margar áskoranir sem fylgja uppgangi gervigreindar, þ.e. að efni sem áður hefur tekið manneskju marga klukkutíma, daga, vikur eða mánuði að búa til getur gervigreind búið til á örfáum sekúndum. Þá er hættunni boðið heim að slíkt efni geti orðið mjög algengt ef ekki verður við því spornað. Þess vegna er ánægjulegt að sjá að hér sé verið að stíga skref til að tryggja að það séu viðurlög og það sé hægt að grípa inn í til að stöðva slíka þróun, komi til hennar. Það er bara mjög gott að sjá það.

Mig langar samt að víkja aðeins aftur að þessari flokkun á evrópsku efni. Nú getur það verið mjög breið flokkun og innan Evrópu eru nokkrir menningarheimar og ég velti því fyrir mér í því samhengi hvort það séu einhverjar vangaveltur um það hvort efni þurfi að vera ákveðið dreift, þannig að t.d. yrði ákveðinn hluti frá Skandinavíu, ákveðinn hluti frá Mið-Evrópu, Austur-, Vestur- og Suður-Evrópu og hvort það sé eitthvað sem þurfi að skoða eða er þetta eitthvað sem engin þörf er að hafa áhyggjur af því að þetta sé raunverulega nú þegar leyst? En ef svo er þá náttúrlega vitum við ekkert hver verður næsta myndefnaveita sem kemur upp, sem er akkúrat eitthvað sem vert er að hafa í huga með uppgangi gervigreindar. Slík veita gæti komið mjög hratt og verið með mjög mikið af efni.