Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

fjölmiðlar.

979. mál
[19:27]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er svo að það er meira og minna verið að huga að innlendum markaði og þess vegna er hann skilgreindur — svo að ég víki aftur að mínu svari þá er efni þar skilgreint sem evrópskt. Ég held að það hafi þótt of íþyngjandi, af því að þetta er innleiðingarmál, að nefna sérstaklega viðkomandi þjóðríki eða eitthvað slíkt, en ég held að tilgangurinn sé að hlúa að gerð innlends efnis og að það verði ekki algjörlega undir í samkeppninni við erlent efni og það mikla efni sem hefur verið að koma í stríðum straumum frá Bandaríkjunum þar sem Bandaríkin framleiða mest af því efni sem kemur inn á mynddeili veitunnar og svo inn á stóru efnisveiturnar eins og Netflix og Disney+ og fleiri.

Að því sögðu þá er það auðvitað mjög ánægjulegt að sjá að þróunin er líka sú að það er aukning á efni frá öllum heimshornum og mjög auðvelt að nálgast textun. Það sem ég sakna þó er íslensk textun og þá er það áminning til okkar um hvort við getum ekki nýtt máltæknina og gervigreindina til að koma textum að þar. Það er eitthvað sem ég er búin að skrifa hjá mér vegna þess að við þurfum að auka texta eða talsetningar á efni af því að ég tel að það myndi bæði auka og dýpka lesskilning hjá fólki. Það er líka meiri þörf á því þegar lífaldur þjóða er að hækka. Þannig að ég tel að það sé eitthvað sem við þurfum að skoða enn frekar.