fjölmiðlar.
Virðulegi forseti. Mig langar að byrja á því að þakka hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra fyrir framsöguna á þessu mikilvæga máli. Mig langar líka að fagna sérstaklega b-lið 12. gr. sem fjallar um að fjölmiðlum sé óheimilt að kynda undir hatri á grundvelli ýmissa hluta. Verandi hvítur miðaldra karlmaður þá hef ég þau forréttindi að lenda ekki mjög mikið í slíku hatri en konur, fólk af erlendum uppruna og fólk með aðra kynhneigð, kynvitund og kyntjáningu lendir skelfilega illa í þessu. Það er oft þannig að þetta fólk er tekið fyrir öðruvísi í fréttum fjölmiðla. Það er fjallað um það öðruvísi, fjallað meira um það jafnvel, gert meira úr hlutum af því að það er öðruvísi. Síðan um leið og þessar fréttir eru komnar í fjölmiðla þá fyrst byrjar hatrið í kommentakerfum fjölmiðla. Mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra, vegna þess að mér fannst greinargerðin ekki vera alveg nógu skýr um það, hvort það að fjölmiðlum sé óheimilt að kynda undir hatri eigi ekki örugglega líka við um það sem þeir leyfa lesendum að skrifa í kommentakerfunum hjá sér.