fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á mikilvægi þess að við spornum gegn allri hatursumræðu og reynum frekar að einblína á það sem sameinar í stað þess sem sundrar. Ég tel að margt í þessari tilskipun sé til þess fallið að reyna að ná betur utan um umræðuna og gera hana málefnalegri. Varðandi spurningu hv. þingmanns um það hvort þetta ætti líka við um athugasemdir sem birtast þá, eins og hv. þingmaður, sé ég það nú ekki í greinargerðinni þannig að þetta er eitthvað sem við þyrftum að skoða betur í ráðuneytinu. Það er hins vegar svo, eins og þið hafið mörg tekið eftir, að það eru margir miðlar sem hafa ekki opið fyrir athugasemdir þegar verið er að skrifa fréttir vegna þess að það gerist oft að það er verið er að skrifa frétt um einstakling eða fyrirtæki eða hvernig svo sem það er, sem er bara frétt um eitthvað sem viðkomandi aðili hefur verið að gera, og svo er bara athugasemdakerfið uppfullt af einhverju sem er kannski miður skemmtilegt. Þá hafa ýmsir fjölmiðlar gripið til þess ráðs að þeir eru hreinlega ekki með athugasemdir, leyfa ekki athugasemdir, m.a. út af þessu. Nú er ég ekkert sérstaklega að mæla með því. En ég held að þetta hljóti að vekja upp spurningar um það og brýningu til okkar um að við getum ekki nokkurn tímann verið fylgjandi því eða haft of mikið svigrúm gagnvart slíkri orðræðu og hún er til þess fallin frekar, eins og ég sagði í inngangsorðum mínum, að sundra. Við sjáum það líka að við þurfum að vera mun meira vakandi gagnvart því hvað tæknin getur boðið upp á.